Jól

„Algjörlega búinn að fá nóg af þessu kirkjukjaftæði“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Bjartmar Guðlaugs samdi jólalag Bylgjunnar í ár.
Bjartmar Guðlaugs samdi jólalag Bylgjunnar í ár. Rakel Rún

Líkt og síðustu ár gefur Bítið á Bylgjunni út fallegt jólalag fyrir hátíðarnar. Lagið í ár samdi Bjartmar Guðlaugsson.

Vala Eiríks fjölmiðlakona syngur lagið með Bjartmari en þau Gulli Helga, Heimir og Lilja Katrín syngja auðvitað líka með. Halldór Fjallabróðir sá um upptökur. 

„Það er verið að drekkja jólunum í auglýsingum og mér finnst það ekkert slæmt, ég er bara algjörlega búinn að fá nóg af þessu kirkjukjaftæði,“ sagði Bjartmar um lagið í viðtali á Bylgjunni fyrr í dag. Hann sagði að Guð væri kominn með kulnun í starfi.

„Vala er algjörlega hjartað í þessu,“ sagði hann um samstarfið. 

Vala og Bjartmar á Bylgjan órafmögnuð tónleikum fyrr í mánuðinumRakel Rún

Lagið má heyra í spilaranum hér fyrir neðan. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×