Jón Guðni spilar engan fótbolta á þessu ári Sindri Sverrisson skrifar 22. júlí 2022 13:44 Jón Guðni Fjóluson var í vörn Íslands þegar Timo Werner og félagar í þýska landsliðinu komu á Laugardalsvöll í fyrrahaust. vísir/Hulda Margrét Fótboltalífið virtist ljúft hjá Jóni Guðna Fjólusyni í fyrrahaust og hann var á leið í leiki með íslenska landsliðinu en varð þá fyrir alvarlegum meiðslum þegar hann sleit krossband í hné. Vegna bakslags spilar hann engan fótbolta á þessu ári.
Jón Guðni er leikmaður Hammarby í Svíþjóð og sænska félagið greindi frá því í dag að þessi 33 ára miðvörður myndi ekki spila nokkurn leik með liðinu á þessari leiktíð, sem þó lýkur ekki fyrr en í nóvember. Jón Guðni, sem á að baki 18 A-landsleiki, hafði unnið sig inn í byrjunarlið íslenska landsliðsins og spilaði gegn Þjóðverjum í september á síðasta ári, rétt áður en krossbandið slitnaði. Misjafnt er hve langan tíma tekur að jafna sig af slíkum meiðslum en algengt er að það taki 6-9 mánuði eftir aðgerð. „Snemma í endurhæfingarferlinu kom bakslag hjá honum [Jóni] sem kallaði á tvö inngrip í hnéð til viðbótar. Jón er farinn að geta aukið álagið í endurhæfingunni en hann kemur ekki til með að geta spilað á yfirstandandi leiktíð,“ segir í tilkynningu Hammarby í dag. Samningur Jóns Guðna við Hammarby gildir til ársloka 2023.
Sænski boltinn Fótbolti Mest lesið Sjáðu Tyson slá Jake Paul á vigtuninni Sport Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Íslenski boltinn Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Körfubolti Steig á tána á Mike Tyson Sport Enskur úrvalsdeildarleikmaður sakaður um margar nauðganir Enski boltinn Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi Enski boltinn „Schumacher lét mér finnast ég vera gagnslaus og hæfileikalaus“ Formúla 1 Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Körfubolti Fyrrverandi kærasta kærir leikmann Liverpool Enski boltinn Uppgjörið: Valur - KR 101-94 | Sálarnærandi sigur Íslandsmeistaranna Körfubolti Fleiri fréttir Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Messi: Þú ert hugleysingi Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Amorim gerir lítið úr pressunni: Ég er mjög afslappaður Ekki ástæða til að hafa áhyggjur af Sveindísi ennþá Óljóst hvar landsleikir í apríl fara fram Plan Arons gekk upp: „Gott að geta gefið af mér“ Stærsta stjarna Svartfellinga ekki með gegn Íslandi: „Erum mjög særðir“ Svona var blaðamannafundur KSÍ í Podgorica Áslaug Munda kemur inn í landsliðið Enn kvarnast úr liði Vestra Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Amorim hitti heppna stuðningsmenn United í klefanum Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Kom til handalögmála í París Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi United gæti skorið niður framlög til fatlaðra stuðningsmanna Fyrsta stóra fótboltafélagið sem yfirgefur X-ið: „Hatursvél“ Vinicius Junior klikkaði á víti og Brassarnir misstu af sigri „Þessi hópur átti líka skilið smá heppni“ Iniesta kaupir danskt fótboltafélag Haaland með mark og stoðsendingu í nauðsynlegum sigri Norðmanna Kelleher og Ferguson hetjurnar í fyrsta heimasigri Heimis Englendingar hefndu með því að sækja sigur til Grikklands Enn vesen með atvinnuleyfi Rúben Amorim Enskur úrvalsdeildarleikmaður sakaður um margar nauðganir Sinnir herskyldu á netinu Tekur við Roma á ný 73 ára gamall Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Sjá meira