Ísland tapaði gegn Slóveníu í vítakeppni Atli Arason skrifar 15. júlí 2022 17:45 Andri Már Rúnarsson var markahæsti leikmaður Íslands með sjö mörk og Andri Finnsson skoraði sex. mynd/hsí Íslenska U-20 ára landslið karla í handbolta tapaði fyrir Slóvenum á Evrópumóti 20 ára landsliða í handbolta rétt í þessu, 37-35. Leikurinn fór alla leið í vítakeppni.
Það var allt jafnt eftir venjulegan leiktíma, 32-32, og því þurfti að grípa til vítakeppni sem Slóvenar unnu með tveimur mörkum eftir að hafa skorað úr öllum vítum sínum og lokatölur því 37-35. Ísland var einu marki yfir í hálfleik, 19-18, en leikið var í Grandomar í Portúgal. Andri Már Rúnarsson var markahæsti leikmaður Íslands með sjö mörk úr tíu tilraunum. Andri Finnsson og Guðmundur Bragi Ástþórsson voru næst markahæstir með sex mörk hvor en Guðmundur var sá eini sem klikkaði á sinni tilraun í vítakeppninni. Næsti leikur Íslands verður á morgun gegn annaðhvort Ítölum eða Færeyjum sem mætast seinna í kvöld. Ísland mun þar leika upp á 11. sæti mótsins en það er þó enn þá til mikils að vinna þar sem efstu 11 sætin á EM gefa þátttökurétt á HM 2023 í Þýskalandi og Grikklandi.
Landslið karla í handbolta Mest lesið „Gaman að vera ekki aumingi“ Körfubolti „Ég er ekki búinn að mæta á æfingu í þrjár vikur“ Körfubolti Bónus Körfuboltakvöld: Völdu besta varnarmanninn og skemmtilegasta liðið Körfubolti Þrumuskalli Glódísar kom Bæjurum á bragðið Fótbolti Lærisveinar Heimis teknir í kennslustund á Wembley Fótbolti Uppgjörið: Aþena - Valur 70-64 | Leikmenn Aþenu nýttu glósubók Brynjars Karls vel Körfubolti Frakkar lögðu Ítali í Mílanó Fótbolti Haaland með þrennu og Norðmenn efstir Fótbolti KA sótti sigur á Ísafjörð og Stjarnan þurfti framlengingu Handbolti Mætti með myndabók af íslensku leikmönnunum á flugvöllinn Fótbolti Fleiri fréttir KA sótti sigur á Ísafjörð og Stjarnan þurfti framlengingu Haukar áfram eftir spennuleik Haukar hentu Eyjamönnum út úr bikarnum Lærisveinar Rúnars með góðan sigur Orri Freyr og félagar áfram á toppnum Íslendingarnir áfram á toppnum eftir sigur á Magdeburg Öruggt hjá liði Díönu Daggar og Andreu í Evrópuslag Íslendingaliðanna Góður endasprettur tryggði Haukum fína stöðu Pick Szeged hafði betur í toppslag Íslendingaliðanna Þorsteinn Leó markahæstur og stórsigur hjá strákunum hans Gumma Frækinn sigur Vals í Kristianstad Reynslubolti skilin eftir heima: „Niðurbrotin“ Lauflétt hjá Valsmönnum sem hoppuðu upp í þriðja sætið Kristján öflugur í sigri í Íslendingaslag Tólfti sigurinn í röð hjá Stiven og félögum Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Elliði segir HM ekki í hættu Mosfellingar í vandræðum í Grafarvogi en redduðu sér í lokin Anna Karólína varði þrjú víti en það dugði ekki til Guðjón Valur án Íslendinga en áfram í bikarnum Uppgjörið: Grótta - Haukar 25-42 | Haukar kjöldrógu Gróttu FH-ingar í fínum gír án Arons „Enn sáttari með að allir leikmenn fari heilir inn í þetta jólafrí” Embla tryggði Stjörnunni sigur Rúnar frábær í sigri á gamla heimavelli sínum í Eyjum Íslendingalið í bikarúrslit í Noregi en aðeins eitt áfram í þýska bikarnum Uppgjör og viðtöl: Haukar - Fram 20-28 | Sannfærandi sigur Fram Einar Bragi öflugur í stórsigri Kristianstad Þórey Anna minnti á sig í 35. sigri Valskvenna í röð Er HSÍ í samstarfi við Adidas eða ekki? Sjá meira