Neytendur

Kalla inn há­karl vegna ó­leyfi­legrar fram­leiðslu

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Varan sem um ræðir.
Varan sem um ræðir. Aðsend

Heildsalan Ó. Johnsons & Kaaber, að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Úrvals hákarl. Ástæðan er sú að framleiðandi vörunnar er ekki með starfsleyfi fyrir framleiðslunni.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, þar sem segir að um óleyfilega framleiðslu sé að ræða og því ekki hægt að tryggja matvælaöryggi. Neytendur sem hafa keypt vöruna eru því beðnir um að neyta hennar ekki og farga, en einnig er hægt að skila henni hjá Ó. Johnson & Kaaber.

Upplýsingar um vöru sem innköllun einskorðast við:

Vöruheiti: Úrvals hákarl

Geymsluþol: Best fyrir dagsetning: 13.12.2022 og 1.1.2023

Strikamerki: 5694230087303

Nettómagn: 100 g

Geymsluskilyrði: Kælivara

Ábyrgðaraðili: Ó. Johnson & Kaaber

Framleiðsluland: Ísland

Vörunni hefur verið dreift hjá Hraðbúðinni Hellissandi, Hagkaupum, Kosti, BL ehf., Kaupfélagi V-Húnvetninga, 10-11, Extra, Plúsmarkaðnum og Krónunni.

Nánari upplýsingar veitir Ó. Johnson & Kaaber í síma 535-4000 eða í gegnum netfangið [email protected].






Fleiri fréttir

Sjá meira


×