Lífið

Yngsti ritstjóri landsins á höttunum eftir fréttariturum

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Auðunn Sölvi Hugason, yngsti ritstjóri landsins.
Auðunn Sölvi Hugason, yngsti ritstjóri landsins. Vísir/Egill

Yngsti ritstjóri landsins, hinn tíu ára Auðunn Sölvi Hugason, ætlar að glæða fréttaflóruna með jákvæðum fréttum frá krökkum um allan heim. Hann stefnir á að verða leikari í framtíðinni en gæti hugsað sér að sinna blaðamennskunni í hlutastarfi.

Auðuni Sölva er margt til lista lagt og hefur raunar nóg fyrir stafni enda náðum við aðeins að grípa hann stuttlega á milli æfinga í Þjóðleikhúsinu, þar sem hann fer með hlutverk í leikritinu Umskiptingurinn. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Auðunn Sölvi stofnað glænýjan fjölmiðil, www.skolafrettir.is.

„Fyrst var ég með lítið skólablað í skólanum mínum en svo fannst mér það ekki alveg nógu umhverfisvænt og þannig kom hugmyndin að byggja upp vef,“ segir hann, sem ætlar sér að hafa jákvæðnina að leiðarljósi.

„Það er lítið af stríðum og covid og svoleiðis. Þetta verður jákvætt og glaðlegt,“ segir Auðunn, sem hefur ekki mikinn áhuga á að lesa fréttir en hefur gaman að því að skrifa þær.

Finnst þér skemmtilegra að skrifa fréttir en lesa þær? „Jahá,“ svarar hann.

Fréttamiðilinn opnaði Auðunn Sölvi í október en sökum annríkis hefur hann varla haft tíma til að segja vinum og bekkjarfélögum frá þessu nýja starfi. Hann segist með skipulagningu ná að halda öllum boltum á lofti en tekur fram að hann sé á höttunum eftir fleiri fréttariturum og hvetur áhugasama eindregið til að senda inn fréttir í gegnum netfangið [email protected].

„Með tímanum væri gaman að hafa bara krakka sem senda inn fréttir og jafnvel frá öðrum heimshornum. Eins og ég á vin sem er frá Ítalíu, hann myndi kannski vilja senda inn fréttir.“

Aðspurður segist hann ekki endilega viss um hvort hann ætli að leggja blaðamennskuna fyrir sig í framtíðinni. „Erfið spurning, en ætli ég vilji ekki verða leikari. Jafnvel einhver svona hálf-fréttaritari. En aðallega leikari.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×