Sport

Hafrún, Kjartan og Rán skoða viðbrögð KSÍ

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hafrún, Kjartan og Rán munu taka málið til skoðunar. Hægt er að senda nefndinni upplýsingar á netfangið uttektarnefnd@isi.is.
Hafrún, Kjartan og Rán munu taka málið til skoðunar. Hægt er að senda nefndinni upplýsingar á netfangið [email protected]. ÍSÍ

Kjartan Björgvinsson héraðsdómari mun gegna formennsku í þriggja manna nefnd á vegum Íþrótta- og ólympíusambands Íslands sem ætlað er að gera úttekt á viðbrögðum og málsmeðferð Knattspyrnusambands Íslands vegna kynferðisofbeldismála sem tengst hafa leikmönnum í landsliðum Íslands.

Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu ÍSÍ og KSÍ.

KSÍ fór þess á leit við ÍSÍ, sem eftirlitsaðili með sérsamböndum, að slík nefnd yrði stofnuð. Nú hefur sú nefnd verið skipuð og í henni eiga sæti Dr. Hafrún Kristjánsdóttir, sálfræðingur, Kjartan Bjarni Björgvinsson, héraðsdómari, sem jafnframt er formaður nefndarinnar og Rán Ingvarsdóttir, lögfræðingur.

Nefndin ásamt Lárusi Blöndal, forseta ÍSÍ, og Gísla Gíslasyni, öðrum varaformanni KSÍ.ÍSÍ

Úttektarnefnd ÍSÍ er sjálfstæð og óháð í störfum sínum. KSÍ ábyrgist að nefndin fái aðgang að öllum þeim gögnum sem það hefur með höndum.

Nefndinni er ætlað að skoða eftirfarandi:

  • Fara yfir þá atburðarás sem leiddi til afsagnar formanns og fyrirhugaðrar afsagnar stjórnar KSÍ í september 2021 ásamt því að bregðast við ásökunum sem fram hafa komið m.a. um þöggun innan KSÍ.
  • Staðreyna eins og kostur er hvaða vitneskja hafi verið innan stjórnar og / eða starfsmanna KSÍ um að leikmenn landsliða eða aðrir sem starfa fyrir KSÍ hafi beitt kynbundnu eða kynferðislegu ofbeldi á árunum 2010 – 2021.
  • Lýsa því hvernig eftirliti og viðbrögðum við slíkum atvikum var háttað innan KSÍ á fyrrgreindu tímabili.
  • Taka til athugunar hvort einhverjar þær aðstæður séu uppi innan KSÍ sem hamla þátttöku kvenna í starfi þess. Þetta er gert í tengslum við fullyrðingar sem fram hafa komið í opinberri umræðu um að KSÍ sé karllægt og fráhrindandi fyrir konur. Í því sambandi verður skoðað hvort skipulag KSÍ eða aðrir þættir í starfseminni séu hamlandi fyrir þátttöku kvenna í starfinu.
  • Leggja grunn að tillögum um úrbætur á verklagi eða um frekari viðbrögð.

Úttektarnefnd ÍSÍ hefur störf nú þegar og er ætlað að ljúka störfum eigi síðar en í nóvember nk. Nefndin mun skila niðurstöðum af sér til framkvæmdastjórnar ÍSÍ. Hægt er að koma upplýsingum á framfæri til nefndarinnar á netfangið [email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×