Íslenski boltinn

Víkingar nýta hraðpróf og fjölga áhorfendum

Sindri Sverrisson skrifar
Víkingar hafa verið dyggilega studdir í síðustu leikjum á leið sinni á topp Pepsi Max-deildarinnar. Ein umferð er eftir.
Víkingar hafa verið dyggilega studdir í síðustu leikjum á leið sinni á topp Pepsi Max-deildarinnar. Ein umferð er eftir. VÍSIR/HULDA MARGRÉT

Víkingar munu geta tekið á móti 1.500 fullorðnum áhorfendum auk barna á laugardaginn, þegar þeir gætu mögulega orðið Íslandsmeistarar í fótbolta karla í fyrsta sinn í þrjátíu ár.

Víkingar hafa ákveðið að nýta nýlegar reglur um stærri viðburði með kröfu um hraðpróf, vegna kórónuveirufaraldursins.

Fólk sem vill freista þess að sjá Víkinga taka á móti Íslandsmeistarabikarnum, ef allt fer að óskum hjá þeim, þarf því að fara í hraðpróf innan við 48 klukkustundum áður en leikur hefst og sýna svo við komuna á leikinn staðfestingu á neikvæðu prófi.

Þannig geta Víkingar fjölgað áhorfendum og haft 1.500 fullorðna í einu sóttvarnahólfi, í stað 1.000 í tveimur hólfum.

Í yfirlýsingu frá Víkingum er bent á þann möguleika að leikurinn gæti verið færður til vegna veðurs, og ljóst að þau sem ætla á völlinn þurfa að gæta þess að fara ekki of snemma í hraðpróf.

Ljóst er að sigur gegn Leikni dugar Víkingi til að verða Íslandsmeistari en vinni liðið ekki gæti Breiðablik orðið meistari með sigri gegn HK á sama tíma.

Yfirlýsingu Víkings má lesa hér að neðan.

Yfirlýsing Víkings vegna leiks við Leiknis:

Í sumar hafa verið í gildi fjöldatakmarkanir og er þessi leikur engin undantekning. Nú þegar er orðið uppselt á leikinn miðað við tvö 500 manna hólf, en með eftirfarandi aðgerðum verður hægt að fjölga miðum og selja sérstaklega í stæði (en ekki í sæti). Til þess að gera fleirum kleift að mæta á leikinn verður gerð krafa um að gestir 16 ára og eldri framvísi neikvæðri niðurstöðu COVID-19 hraðprófs. Þetta er gert til þess að sem flestir geti upplifað þá stemningu sem mun vera í Víkinni á laugardaginn og hvatt liðið okkar áfram. Börn fædd 2006 og síðar telja ekki í gildandi takmörkunum.

Hraðpróf, sem er ókeypis, er pantað í gegnum slóðina https://hradprof.covid.is og vekjum við athygli á að COVID-19 sjálfspróf er ekki nóg, heldur þarf að fara í hraðpróf á fimmtudag eða föstudag, þar sem prófið má ekki vera meira en 48 klst gamalt. Hraðpróf eru opin alla virka daga frá 08:00 til 12:00 og frá 12:45 til 20:00.

Verði leiknum frestað til sunnudags vegna veðurs er hraðpróf frá fimmtudeginum útrunnið. Miðasala á aukamiðum fer fram í miðasöluappinu Stubbi og hefst miðvikudaginn 22. september kl. 11:00.

Að gefnu tilefni er rétt að taka það fram, að sjái einhverjir þeirra sem hafa nú þegar keypt miða á leikinn sér ekki fært að uppfylla skilyrði um hraðpróf þá eiga þeir aðilar fullan rétt til endurgreiðslu og munu aðrir stuðningsmenn hafa færi á að kaupa þá miða sem losna vegna slíks. Þá er jafnframt rétt að taka það sérstaklega fram að aðrir miðar en þeir sem eru útgefnir í gegnum Stubb, eins og t.d. opnir miðar frá Ölgerðinni á leiki í Pepsi Max deildinni, munu ekki gilda á leikinn. Allar óskir um endurgreiðslur aðgöngumiða skal senda á netfangið [email protected]

Áfram Víkingur!




Fleiri fréttir

Sjá meira


×