Neytendur

Inn­kalla kjúk­linga­baunir vegna skor­dýra

Atli Ísleifsson skrifar
Fyrirtækið hefur hafið innköllun á kjúklingabaununum í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.
Fyrirtækið hefur hafið innköllun á kjúklingabaununum í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur. Matvælastofnun

Matvælastofnun hefur varað við neyslu á einni framleiðslulotu af Sólgæti kjúklingabaunum með uppruna frá Tyrkland sem Heilsa flytur inn. Skordýr, eða bjöllur, hafa fundist í pokanum.

Fyrirtækið hefur hafið innköllun á kjúklingabaununum í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.

„Matvælastofnun fékk upplýsingar um vöruna frá innflytjanda sem hafði fengið upplýsingar frá neytanda sínum og tilkynnt áfram til birgja í Evrópu.

Viðskiptavinum sem hafa keypt ofangreinda vöru er bent á að hafa samband við Heilsu, netfangið er: [email protected] eða í síma 533-3232.

Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Vörumerki: Sólgæti
  • Vöruheiti: Sólgæti kjúklingabaunir
  • Strikamerki: 5024425282945
  • Nettómagn: 500g
  • Best fyrir dagsetning: 31.07.2021
  • Innflytjandi: Heilsa, Bæjarflöt 1, 112 Reykjavík
  • Dreifing: Heilsuhúsin, Fjarðarkaup, Kaupfélag Vestur-Húnvetninga, Melabúðin, Samkaup, Nettó.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×