Innlent

Lýsa eftir Sean Bradley

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sean Aloysius Marius Bradley er skráður til búsetu á Selfossi.
Sean Aloysius Marius Bradley er skráður til búsetu á Selfossi.

Lögreglan á Suðurlandi lýsir eftir Sean Aloysius Marius Bradley sem fæddur er 22. apríl 1957 og skráður til búsetu að Austurvegi 34 á Selfossi. Sean er 167 sm hár. Hann er hreyfiskertur og gengur einungis stuttar vegalengdir án stuðnings. 

Eftir því sem næst verður komist hélt hann til Malaga á Spáni í júni 2018 en ekki hefur frést af honum eftir það eða tekist að staðfesta hvar hann kunni að vera. Nánustu ættingjar Sean eru búsettir í Bretlandi og hafa óskað eftir því að líst verði eftir honum á alþjóðaavísu. 

Þeir sem mögulega kunna að hafa upplýsingar um hvar Sean Bradley er að finna eða ferðir hans eru beðnir að koma þeim upplýsingum til lögreglunnar á Suðurlandi á netfangið [email protected] eða í síma +354 444 2000




Fleiri fréttir

Sjá meira


×