Lögreglan Allar landamærastöðvar efldar og þeim mögulega fækkað Íslensk stjórnvöld hafa markað nýja stefnu í landamæramálum sem ætlað er að efla landamæraeftirlit, auka viðbrögð við skipulagðri brotastarfsemi og tryggja mannúðlega móttöku og brottflutning hælisleitenda. Innlent 15.11.2024 11:28 Svona var fundur ráðherra og ríkislögreglustjóra um landamærin Guðrún Hafsteindóttir dómsmálaráðherra og Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri hafa boðað til upplýsingafundar um stefnu stjórnvalda í málefnum landamæra og landsáætlun um samþætta landamærastjórnun. Innlent 15.11.2024 07:39 Ríkislögreglustjóri beinir sjónum sínum að leynilegri upptöku Greiningardeild ríkislögreglustjóra hefur ákveðið að kanna mál sem snýr að leyniupptökum huldumanns á samtali sínu við Gunnar Bergmann, son Jóns Gunnarssonar, þingmanns og aðstoðarmanns forsætis- og matvælaráðherra. Lögregla hefur rætt við Gunnar í tengslum við athugun sína á málinu. Innlent 13.11.2024 16:24 Margeir stefnir ríkinu Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, hefur stefnt íslenska ríkinu. Hann var sendur í leyfi í fyrra eftir að sálfræðistofa komst að þeirri niðurstöðu að Margeir hefði beitt samstarfskonu sína kynferðislegri og kynbundinni áreitni. Innlent 13.11.2024 14:09 Von á hvellum frá sérsveitinni í hjarta Kópavogs Sérsveit ríkislögreglustjóra verður við æfingar við Fannborg í hjarta Kópavogs í dag. Almenningur er sagður geta átt von á því að heyra hvelli og læti sem eigi sér eðlilegar skýringar. Innlent 13.11.2024 10:23 „Þetta mál hélt fyrir mér vöku í tvo mánuði“ Ragnar Jónsson, lögreglufulltrúi og blóðferlafræðingur, segir rannsókn á hvarfi og andláti Birnu Brjánsdóttur hafa tekið mikið á. Málið hafi haldið fyrir honum vöku í þrjá mánuði, og hann muni ekkert eftir fjölskylduferð sem hann fór í að rannsókninni lokinni. Innlent 12.11.2024 22:13 Lögbrjótar ættu að fylgjast með á Ísland.is Tímamót urðu hjá lögreglu í síðustu viku þegar fyrsta rafræna ákæran var gefin út vegna umferðarlagabrota og í framhaldi var fyrsta rafræna fyrirkallið birt á stafrænu Íslandi. Breytingar á lögum um meðferð sakamála í sumar gerði lögreglu kleift að fara af stað með þetta starfræna verkefni. Innlent 8.11.2024 12:18 „Enginn mótmælenda ógnaði lögreglumönnum eða réðist að þeim“ Fyrirtaka fer fram í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli níu einstaklinga sem krefjast miskabóta vegna framgöngu lögreglu á mótmælum þann 31. maí í Skuggasundi, við fund ríkisstjórnarinnar, vegna ástandsins á Gasa. Þar voru um 40 mótmælendur beittir piparúða. Þrír fóru á slysadeild og tveir fengu aðhlynningu sjúkraliða á vettvangi. Innlent 8.11.2024 10:02 Lögreglumenn samningslausir mánuðum saman og án verkfallsréttar Nú þegar fundi Norðurlandaráðs er nýlokið þar sem lögreglumenn voru í áberandi og í nauðsynlegu hlutverki gefst tækifæri til að vekja athygli á stöðu lögreglumanna og kjörum þeirra. Í dag hafa lögreglumenn nú verið án nýs kjarasamnings í um sjö mánuði. Skoðun 7.11.2024 15:31 Ekki vanhæfur til að rannsaka banaslysið Lögreglustjórinn á Suðurnesjum var ekki vanhæfur til þess að fara með rannsókn banaslyss sem varð í Grindavík í janúar á þessu ári. Þetta er niðurstaða Ríkissaksóknara. Innlent 7.11.2024 13:29 Fleiri tilkynningar um týnd ungmenni en allt árið í fyrra Það sem af er ári hefur lögreglu borist mun fleiri tilkynningar um týnd ungmenni en allt árið í fyrra. Framkvæmdastjóri Barnaverndar segir málin þar harðari en áður og að neysla ungmenna hafi aukist. Þá skorti úrræði og við því þurfi að bregðast. Innlent 5.11.2024 19:01 Er eitthvað mál að handtaka börn? Við getum öll verið sammála um það að við viljum búa í samfélagi þar sem traust ríkir á milli þegna þess og lögreglu. Skoðun 4.11.2024 15:32 Enginn verið stuðaður með rafbyssu ennþá Lögreglumenn hafa fimmtán sinnum dregið rafbyssur úr slíðri eða ræst þær eftir að þeir fengu þær fyrst í hendur í september. Enginn hefur enn verið skotinn með rafbyssu af lögreglumönnum. Hver rafbyssa kostar meira en milljón krónur. Innlent 4.11.2024 08:33 Stefna ríkinu vegna framgöngu lögreglu Héraðsdómur Reykjavíkur mun taka mál níu mótmælenda á hendur ríkisins fyrir þann 8. nóvember næstkomandi. Mótmælendur hafa farið fram á skaðabætur vegna framgöngu lögreglu á mótmælum við Skuggasund þann 31. maí síðastliðinn. Nefnd um eftirlit með lögreglu taldi engar vísbendingar um ámælisverða háttsemi lögreglumanna. Innlent 31.10.2024 21:58 Vopnaðir lögreglumenn standa vaktina Vopnaðir lögreglumenn standa vaktina á suðvesturhorninu í dag í tilefni Norðurlandaráðsþings og heimsóknar Úkraínuforseta. Forsætisráðherra fundar með Úkraínuforseta á Þingvöllum í dag. Innlent 28.10.2024 13:35 Aukin netöryggisógn, götulokanir og vopnuð lögregla á Íslandi næstu daga Aukin netöryggisógn beinist að Íslandi í tengslum við Norðurlandaráðsþing sem hefst á morgun. Viðbúnaðarstig lögreglu verður hækkað og verður mikill öryggisviðbúnaður og götulokanir á afmörkuðum svæðum. Úkraínuforseti verður meðal gesta sem kallar á aukinn viðbúnað. Innlent 27.10.2024 19:39 Sverrir Einar kærir lögregluþjón fyrir rangar sakagiftir Sverrir Einar Eiríksson, eigandi Nýju vínbúðarinnar og fyrrverandi eigandi skemmtistaðarins B5, hefur lagt fram kæru á hendur lögregluþjóns sem sakaði hann um að tálma störf lögregluþjóna og veist að sér með ofbeldi. Umræddur lögregluþjónn hafði áður kært Sverri en bæði héraðssaksóknari og ríkissaksóknari hafa vísað þeirri kæru frá. Innlent 26.10.2024 10:51 Með í maganum og stígur út fyrir þægindarammann „Það er þannig að sumir lenda á milli og þá eru engin úrræði sem passa við. Við sjáum það í samtölum við fólk að það eru til börn og ungmenni sem eru með þannig vandkvæði að þau passa hvergi. Við finnum það öll að þegar það er talað um málefni barna að þetta er viðkvæmt og miklar tilfinningar í þessu. Fyrir utan það að það er auðvitað kostnaður fyrir samfélagið að það verði til fólk sem brýtur af sér eða verði ekki nýtir þjóðfélagsþegnar.“ Innlent 25.10.2024 22:32 „Þurfum á því að halda að það verði breyting á stjórn landsins“ Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn er í þriðja sæti Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi norður. Hann segir kominn tíma á breytingu á stjórn landsins. Innlent 24.10.2024 21:14 Vopnaðir lögreglumenn og lokaðar götur í næstu viku Umfangsmiklar götulokanir verða í Reykjavík í næstu viku, vegna þings Norðurlandaráðs, auk þess sem vopnaðir lögreglumenn munu sinna öryggisgæslu. Verulegar takmarkanir verða einnig á umferð um Þingvelli á mánudag. Innlent 24.10.2024 13:21 Karl Gauti til í oddvitann eftir óvænt brotthvarf Tómasar Karl Gauti Hjaltason lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum og fyrrverandi þingmaður Miðflokksins, segir að búið sé að hafa samband við sig varðandi það að taka sæti á lista Miðflokksins í Suðurkjördæmi. Hann segist munu íhuga það vandlega að taka sæti á lista ef honum yrði boðið oddvitasætið. Innlent 23.10.2024 13:35 Grímur undir feldi Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, íhugar alvarlega framboð fyrir Viðreisn í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæminu. Innlent 22.10.2024 09:17 Víðir verður oddviti Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi Víðir Reynisson, sviðsstjóri Almannavarna, er sagður munu taka oddvitasæti fyrir Samfylkinguna í Suðurkjördæmi. Innlent 19.10.2024 17:21 Átti líka morgunspjall við ríkislögreglustjóra vegna Yazans Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir var annar tveggja fyrrverandi dómsmálaráðherra úr röðum Sjálfstæðisflokksins sem höfðu samband við ríkislögreglustjóra morguninn sem embættið stóð í brottvísun tólf ára drengs frá Palestínu, Yazan Tamimi. Auk þess hafði Jón Gunnarsson samband auk félags- og vinnumarkaðsráðherra. Innlent 18.10.2024 13:36 „Þetta mál er lögregluembættinu til ævarandi skammar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra var harðlega gagnrýnd í Pallborði Vísis í gær en gestir voru þau Þóra Arnórsdóttir, fyrrverandi ritstjóri Kveiks og Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður Heimildarinnar. Þau voru sakborningar í máli sem varðar meinta byrlun og svo símastuld af Páli skipstjóra Steingrímssonar. Innlent 17.10.2024 07:02 Páll skipstjóri hvergi nærri hættur Eva Hauksdóttir, lögmaður Páls Steingrímssonar fyrrverandi skipstjóra hjá Samherja, er að leggja lokahönd á kæru á niðurfellingu rannsóknar lögreglunnar á Norðurlandi eystra á meintri byrlun til ríkissaksóknara. Innlent 15.10.2024 10:49 Dagbjört stendur við færsluna sem hún eyddi Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, segist standa við það sem hún sagði í færslu sem hún eyddi af samfélagsmiðlum um helgina. Hún segir þau hörðu viðbrögð sem færslan fékk einkennast af misskilningi og fréttaflutning af henni misvísandi. Innlent 14.10.2024 18:52 „Mér fannst mjög eðlilegt að ég myndi hringja í ríkislögreglustjóra“ Félags- og vinnumarkaðsráðherra segist aðeins hafa hringt í ríkislögreglustjóra til þess að afla upplýsinga nóttina sem senda átti Yazan Tamimi og fjölskyldu úr landi. Hann hafi ekki farið fram á að ríkislögreglustjóri stöðvaði brottflutninginn. „Mér fannst mjög eðlilegt að ég myndi hringja í ríkislögreglustjóra,“ segir hann. Innlent 12.10.2024 13:57 Má lögregla rannsaka mál að eilífu? Til eru dæmi þess að fólk hafi haft réttarstöðu sakbornings árum saman jafnvel án þess að virk rannsókn hafi staðið yfir megnið af tímanum. Réttarríkið er grundvöllur sanngjarns og góðs samfélags. Tilgangur þess er að tryggja öryggi og réttindi fólks. Það er mikilvægt að við séum stöðugt vakandi yfir því hvort lögin og framkvæmd þeirra geri það á hverjum tíma. Skoðun 11.10.2024 08:32 Vilja 62 milljónir til að tryggja vopnabirgðir lögreglu og sérsveitar Embætti ríkislögreglustjóra telur að auka þurfi fjárveitingar um 62 milljónir árlega til embættisins til að tryggja nauðsynlegar vopnabirgðir og íhluti lögreglunnar. Embættið segir að ekki hafi verið nægilega vel tekið tillit til breytts starfsumhverfis og krefjandi aðstæðna löggæslu í fjárlagafrumvarpinu. Þetta kemur fram í umsögn embættisins um fjárlagafrumvarp næsta árs, 2025. Innlent 10.10.2024 08:01 « ‹ 1 2 3 4 5 6 … 39 ›
Allar landamærastöðvar efldar og þeim mögulega fækkað Íslensk stjórnvöld hafa markað nýja stefnu í landamæramálum sem ætlað er að efla landamæraeftirlit, auka viðbrögð við skipulagðri brotastarfsemi og tryggja mannúðlega móttöku og brottflutning hælisleitenda. Innlent 15.11.2024 11:28
Svona var fundur ráðherra og ríkislögreglustjóra um landamærin Guðrún Hafsteindóttir dómsmálaráðherra og Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri hafa boðað til upplýsingafundar um stefnu stjórnvalda í málefnum landamæra og landsáætlun um samþætta landamærastjórnun. Innlent 15.11.2024 07:39
Ríkislögreglustjóri beinir sjónum sínum að leynilegri upptöku Greiningardeild ríkislögreglustjóra hefur ákveðið að kanna mál sem snýr að leyniupptökum huldumanns á samtali sínu við Gunnar Bergmann, son Jóns Gunnarssonar, þingmanns og aðstoðarmanns forsætis- og matvælaráðherra. Lögregla hefur rætt við Gunnar í tengslum við athugun sína á málinu. Innlent 13.11.2024 16:24
Margeir stefnir ríkinu Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, hefur stefnt íslenska ríkinu. Hann var sendur í leyfi í fyrra eftir að sálfræðistofa komst að þeirri niðurstöðu að Margeir hefði beitt samstarfskonu sína kynferðislegri og kynbundinni áreitni. Innlent 13.11.2024 14:09
Von á hvellum frá sérsveitinni í hjarta Kópavogs Sérsveit ríkislögreglustjóra verður við æfingar við Fannborg í hjarta Kópavogs í dag. Almenningur er sagður geta átt von á því að heyra hvelli og læti sem eigi sér eðlilegar skýringar. Innlent 13.11.2024 10:23
„Þetta mál hélt fyrir mér vöku í tvo mánuði“ Ragnar Jónsson, lögreglufulltrúi og blóðferlafræðingur, segir rannsókn á hvarfi og andláti Birnu Brjánsdóttur hafa tekið mikið á. Málið hafi haldið fyrir honum vöku í þrjá mánuði, og hann muni ekkert eftir fjölskylduferð sem hann fór í að rannsókninni lokinni. Innlent 12.11.2024 22:13
Lögbrjótar ættu að fylgjast með á Ísland.is Tímamót urðu hjá lögreglu í síðustu viku þegar fyrsta rafræna ákæran var gefin út vegna umferðarlagabrota og í framhaldi var fyrsta rafræna fyrirkallið birt á stafrænu Íslandi. Breytingar á lögum um meðferð sakamála í sumar gerði lögreglu kleift að fara af stað með þetta starfræna verkefni. Innlent 8.11.2024 12:18
„Enginn mótmælenda ógnaði lögreglumönnum eða réðist að þeim“ Fyrirtaka fer fram í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli níu einstaklinga sem krefjast miskabóta vegna framgöngu lögreglu á mótmælum þann 31. maí í Skuggasundi, við fund ríkisstjórnarinnar, vegna ástandsins á Gasa. Þar voru um 40 mótmælendur beittir piparúða. Þrír fóru á slysadeild og tveir fengu aðhlynningu sjúkraliða á vettvangi. Innlent 8.11.2024 10:02
Lögreglumenn samningslausir mánuðum saman og án verkfallsréttar Nú þegar fundi Norðurlandaráðs er nýlokið þar sem lögreglumenn voru í áberandi og í nauðsynlegu hlutverki gefst tækifæri til að vekja athygli á stöðu lögreglumanna og kjörum þeirra. Í dag hafa lögreglumenn nú verið án nýs kjarasamnings í um sjö mánuði. Skoðun 7.11.2024 15:31
Ekki vanhæfur til að rannsaka banaslysið Lögreglustjórinn á Suðurnesjum var ekki vanhæfur til þess að fara með rannsókn banaslyss sem varð í Grindavík í janúar á þessu ári. Þetta er niðurstaða Ríkissaksóknara. Innlent 7.11.2024 13:29
Fleiri tilkynningar um týnd ungmenni en allt árið í fyrra Það sem af er ári hefur lögreglu borist mun fleiri tilkynningar um týnd ungmenni en allt árið í fyrra. Framkvæmdastjóri Barnaverndar segir málin þar harðari en áður og að neysla ungmenna hafi aukist. Þá skorti úrræði og við því þurfi að bregðast. Innlent 5.11.2024 19:01
Er eitthvað mál að handtaka börn? Við getum öll verið sammála um það að við viljum búa í samfélagi þar sem traust ríkir á milli þegna þess og lögreglu. Skoðun 4.11.2024 15:32
Enginn verið stuðaður með rafbyssu ennþá Lögreglumenn hafa fimmtán sinnum dregið rafbyssur úr slíðri eða ræst þær eftir að þeir fengu þær fyrst í hendur í september. Enginn hefur enn verið skotinn með rafbyssu af lögreglumönnum. Hver rafbyssa kostar meira en milljón krónur. Innlent 4.11.2024 08:33
Stefna ríkinu vegna framgöngu lögreglu Héraðsdómur Reykjavíkur mun taka mál níu mótmælenda á hendur ríkisins fyrir þann 8. nóvember næstkomandi. Mótmælendur hafa farið fram á skaðabætur vegna framgöngu lögreglu á mótmælum við Skuggasund þann 31. maí síðastliðinn. Nefnd um eftirlit með lögreglu taldi engar vísbendingar um ámælisverða háttsemi lögreglumanna. Innlent 31.10.2024 21:58
Vopnaðir lögreglumenn standa vaktina Vopnaðir lögreglumenn standa vaktina á suðvesturhorninu í dag í tilefni Norðurlandaráðsþings og heimsóknar Úkraínuforseta. Forsætisráðherra fundar með Úkraínuforseta á Þingvöllum í dag. Innlent 28.10.2024 13:35
Aukin netöryggisógn, götulokanir og vopnuð lögregla á Íslandi næstu daga Aukin netöryggisógn beinist að Íslandi í tengslum við Norðurlandaráðsþing sem hefst á morgun. Viðbúnaðarstig lögreglu verður hækkað og verður mikill öryggisviðbúnaður og götulokanir á afmörkuðum svæðum. Úkraínuforseti verður meðal gesta sem kallar á aukinn viðbúnað. Innlent 27.10.2024 19:39
Sverrir Einar kærir lögregluþjón fyrir rangar sakagiftir Sverrir Einar Eiríksson, eigandi Nýju vínbúðarinnar og fyrrverandi eigandi skemmtistaðarins B5, hefur lagt fram kæru á hendur lögregluþjóns sem sakaði hann um að tálma störf lögregluþjóna og veist að sér með ofbeldi. Umræddur lögregluþjónn hafði áður kært Sverri en bæði héraðssaksóknari og ríkissaksóknari hafa vísað þeirri kæru frá. Innlent 26.10.2024 10:51
Með í maganum og stígur út fyrir þægindarammann „Það er þannig að sumir lenda á milli og þá eru engin úrræði sem passa við. Við sjáum það í samtölum við fólk að það eru til börn og ungmenni sem eru með þannig vandkvæði að þau passa hvergi. Við finnum það öll að þegar það er talað um málefni barna að þetta er viðkvæmt og miklar tilfinningar í þessu. Fyrir utan það að það er auðvitað kostnaður fyrir samfélagið að það verði til fólk sem brýtur af sér eða verði ekki nýtir þjóðfélagsþegnar.“ Innlent 25.10.2024 22:32
„Þurfum á því að halda að það verði breyting á stjórn landsins“ Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn er í þriðja sæti Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi norður. Hann segir kominn tíma á breytingu á stjórn landsins. Innlent 24.10.2024 21:14
Vopnaðir lögreglumenn og lokaðar götur í næstu viku Umfangsmiklar götulokanir verða í Reykjavík í næstu viku, vegna þings Norðurlandaráðs, auk þess sem vopnaðir lögreglumenn munu sinna öryggisgæslu. Verulegar takmarkanir verða einnig á umferð um Þingvelli á mánudag. Innlent 24.10.2024 13:21
Karl Gauti til í oddvitann eftir óvænt brotthvarf Tómasar Karl Gauti Hjaltason lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum og fyrrverandi þingmaður Miðflokksins, segir að búið sé að hafa samband við sig varðandi það að taka sæti á lista Miðflokksins í Suðurkjördæmi. Hann segist munu íhuga það vandlega að taka sæti á lista ef honum yrði boðið oddvitasætið. Innlent 23.10.2024 13:35
Grímur undir feldi Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, íhugar alvarlega framboð fyrir Viðreisn í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæminu. Innlent 22.10.2024 09:17
Víðir verður oddviti Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi Víðir Reynisson, sviðsstjóri Almannavarna, er sagður munu taka oddvitasæti fyrir Samfylkinguna í Suðurkjördæmi. Innlent 19.10.2024 17:21
Átti líka morgunspjall við ríkislögreglustjóra vegna Yazans Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir var annar tveggja fyrrverandi dómsmálaráðherra úr röðum Sjálfstæðisflokksins sem höfðu samband við ríkislögreglustjóra morguninn sem embættið stóð í brottvísun tólf ára drengs frá Palestínu, Yazan Tamimi. Auk þess hafði Jón Gunnarsson samband auk félags- og vinnumarkaðsráðherra. Innlent 18.10.2024 13:36
„Þetta mál er lögregluembættinu til ævarandi skammar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra var harðlega gagnrýnd í Pallborði Vísis í gær en gestir voru þau Þóra Arnórsdóttir, fyrrverandi ritstjóri Kveiks og Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður Heimildarinnar. Þau voru sakborningar í máli sem varðar meinta byrlun og svo símastuld af Páli skipstjóra Steingrímssonar. Innlent 17.10.2024 07:02
Páll skipstjóri hvergi nærri hættur Eva Hauksdóttir, lögmaður Páls Steingrímssonar fyrrverandi skipstjóra hjá Samherja, er að leggja lokahönd á kæru á niðurfellingu rannsóknar lögreglunnar á Norðurlandi eystra á meintri byrlun til ríkissaksóknara. Innlent 15.10.2024 10:49
Dagbjört stendur við færsluna sem hún eyddi Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, segist standa við það sem hún sagði í færslu sem hún eyddi af samfélagsmiðlum um helgina. Hún segir þau hörðu viðbrögð sem færslan fékk einkennast af misskilningi og fréttaflutning af henni misvísandi. Innlent 14.10.2024 18:52
„Mér fannst mjög eðlilegt að ég myndi hringja í ríkislögreglustjóra“ Félags- og vinnumarkaðsráðherra segist aðeins hafa hringt í ríkislögreglustjóra til þess að afla upplýsinga nóttina sem senda átti Yazan Tamimi og fjölskyldu úr landi. Hann hafi ekki farið fram á að ríkislögreglustjóri stöðvaði brottflutninginn. „Mér fannst mjög eðlilegt að ég myndi hringja í ríkislögreglustjóra,“ segir hann. Innlent 12.10.2024 13:57
Má lögregla rannsaka mál að eilífu? Til eru dæmi þess að fólk hafi haft réttarstöðu sakbornings árum saman jafnvel án þess að virk rannsókn hafi staðið yfir megnið af tímanum. Réttarríkið er grundvöllur sanngjarns og góðs samfélags. Tilgangur þess er að tryggja öryggi og réttindi fólks. Það er mikilvægt að við séum stöðugt vakandi yfir því hvort lögin og framkvæmd þeirra geri það á hverjum tíma. Skoðun 11.10.2024 08:32
Vilja 62 milljónir til að tryggja vopnabirgðir lögreglu og sérsveitar Embætti ríkislögreglustjóra telur að auka þurfi fjárveitingar um 62 milljónir árlega til embættisins til að tryggja nauðsynlegar vopnabirgðir og íhluti lögreglunnar. Embættið segir að ekki hafi verið nægilega vel tekið tillit til breytts starfsumhverfis og krefjandi aðstæðna löggæslu í fjárlagafrumvarpinu. Þetta kemur fram í umsögn embættisins um fjárlagafrumvarp næsta árs, 2025. Innlent 10.10.2024 08:01