Jól

Einvalalið leikara kveður árið 2020

Hjalti Freyr Ragnarsson skrifar
Öllu er til tjaldað í nýárskveðju Borgarleikhússins.
Öllu er til tjaldað í nýárskveðju Borgarleikhússins. borgarleikhúsið

Borgarleikhúsið bauð landsmönnum öllum upp á veglega jóladagskrá í formi jóladagatals í ár. Á hverjum degi frá 1. til 24. desember var opnaður gluggi og listamenn leikhússins glöddu með fjölbreyttum atriðum.

Síðasti gluggi þess var opnaður á aðfangadag en til að binda endahnútinn á dagskrána býður Borgarleikhúsið nú upp á sérstaka nýárskveðju.

Í henni er öllu til tjaldað og einvalalið leikara tekur lagið.

„Borgarleikhúsið óskar landsmönnum öllum árs og friðar og hlakkar óstjórnlega til að sjá ykkur á nýju ári!„ segir í kveðju frá leikhúsfólkinu.

Klippa: Nýárskveðja Borgarleikhússins





Fleiri fréttir

Sjá meira


×