Jól

Fara aftur til 1986 í glugga dagsins

Tinni Sveinsson skrifar
Aron Már Ólason og Rakel Björk Björnsdóttir eiga sviðið í Jóladagatali Borgarleikhússins í dag.
Aron Már Ólason og Rakel Björk Björnsdóttir eiga sviðið í Jóladagatali Borgarleikhússins í dag.

Borgarleikhúsið býður landsmönnum öllum upp á veglega jóladagskrá í formi jóladagatals í ár. Á hverjum degi frá 1. til 24. desember verður opnaður gluggi og listamenn leikhússins gleðja með fjölbreyttum atriðum.

Fyrir jól, Fyrir jól

Nú styttist í jólin og í mörg horn að líta, þrífa, skreyta, baka og ekki síst, kaupa allar jólagjafirnar! Er jólastressið nokkuð að taka völdin? Aron og Rakel vita af þessu og því hversu erfitt árið hefur reynst mörgum. Þess vegna fara þau aftur í tímann til 1986 og taka áhorfendur með sér.

Klippa: Jóla­daga­tal Borgar­leik­hússins - 17. desember

Von er á sögum, söng og tónlist, fróðleik, gríni og gleði á hverjum degi fram að jólum frá Borgarleikhúsinu. Gluggar í Jóladagatali leikhússins eru birtir daglega hér á Vísi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×