Skiptir Magni um starf hjá AIK? Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 14. desember 2020 15:00 Magni Fannberg gæti verið næsti aðstoðarþjálfari AIK. Start Magazine Magni Fannberg gæti orðið næsti aðstoðarþjálfari sænska úrvalsdeildarliðsins AIK. Hann starfar nú sem þróunarstjóri hjá félaginu.
Samkvæmt heimildum sænska miðilsins Expressen er Patric Jildefalk, aðstoðarþjálfari liðsins, að öllum líkindum að fara taka við B-deildarliði Jönköping Södra. Liðið fór alla leið í úrslitaleik umspilsins um sæti í sænsku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð en tapaði þar fyrir Kalmar. Magni er samningsbundinn AIK til ársins 2022 og starfar eins og áður sagði sem þróunarstjóri félagsins. Þar áður var hann hjá norska félaginu Brann í sama hlutverki. AIK er eitt af stærstu liðum Svíþjóðar og hefur unnið tólf sinnum orðið sænskur meistari, síðast árið 2018. Tímabilið í ár gekk hins vegar ekki nægilega vel og endaði liðið í 9. sæti með 39 stig í 30 leikjum. Þjálfaraskipti urðu hjá félaginu í upphafi tímabils en Rikard Norling var þá látinn taka poka sinn og tók Bartosz Grzelak – þáverandi aðstoðarþjálfari – við stjórnartaumunum. Kolbeinn Sigþórsson hefur leikið með félaginu frá mars 2019 en landsliðsframherjinn hefur fengið þau skilaboð að hann megi finna sér nýtt lið. Mbl.is ræddi stuttlega við Magna um mögulega breytingu á starfi hans hjá sænska félaginu. „Ég er mjög ánægður í mínu starfi hjá AIK og vonast til að vera hérna í mörg ár í viðbót. Hvort ég verði þá inn í þjálfarateyminu eða í einhverju öðru hlutverki verður bara að koma í ljós. Það er undir öðrum komið,“ sagði Magni Fannberg í stuttu viðtali við mbl.is um málið.
Fótbolti Sænski boltinn Mest lesið Steig á tána á Mike Tyson Sport Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Fótbolti Reynslubolti skilin eftir heima: „Niðurbrotin“ Handbolti Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Fótbolti „Ég hef séð svona veikleikamerki hjá liðinu“ Körfubolti Baldur veit ekki hvort hann fái að þjálfa ÍR-liðið áfram Körfubolti Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Fótbolti Dagskráin: Íslenska karlalandsliðið í eldlínunni í Svartfjallalandi Sport Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Körfubolti Fleiri fréttir Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Messi: Þú ert hugleysingi Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Amorim gerir lítið úr pressunni: Ég er mjög afslappaður Ekki ástæða til að hafa áhyggjur af Sveindísi ennþá Óljóst hvar landsleikir í apríl fara fram Plan Arons gekk upp: „Gott að geta gefið af mér“ Stærsta stjarna Svartfellinga ekki með gegn Íslandi: „Erum mjög særðir“ Svona var blaðamannafundur KSÍ í Podgorica Áslaug Munda kemur inn í landsliðið Enn kvarnast úr liði Vestra Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Amorim hitti heppna stuðningsmenn United í klefanum Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Kom til handalögmála í París Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi United gæti skorið niður framlög til fatlaðra stuðningsmanna Fyrsta stóra fótboltafélagið sem yfirgefur X-ið: „Hatursvél“ Vinicius Junior klikkaði á víti og Brassarnir misstu af sigri „Þessi hópur átti líka skilið smá heppni“ Iniesta kaupir danskt fótboltafélag Haaland með mark og stoðsendingu í nauðsynlegum sigri Norðmanna Kelleher og Ferguson hetjurnar í fyrsta heimasigri Heimis Englendingar hefndu með því að sækja sigur til Grikklands Enn vesen með atvinnuleyfi Rúben Amorim Enskur úrvalsdeildarleikmaður sakaður um margar nauðganir Sinnir herskyldu á netinu Tekur við Roma á ný 73 ára gamall Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Sjá meira