Jól

Tóta og Siggi koma öllum í jólaskap

Tinni Sveinsson skrifar
Leikararnir Sigurður Þór Óskarsson og Þórunn Arna Kristjánsdóttir syngja ljúft lag í jóladagatali Borgarleikhússins.
Leikararnir Sigurður Þór Óskarsson og Þórunn Arna Kristjánsdóttir syngja ljúft lag í jóladagatali Borgarleikhússins.

Borgarleikhúsið býður landsmönnum öllum upp á veglega jóladagskrá í formi jóladagatals í ár. Á hverjum degi frá 1. til 24. desember verður opnaður gluggi og listamenn leikhússins gleðja með fjölbreyttum atriðum.

Huggulegt á aðventunni

Í glugga dagsins er mikil jólastemning. Myrkur, kuldi og stormur hafa engin áhrif á Tótu og Sigga sem hafa það huggulegt á aðventunni og koma öllum í sannkallað jólaskap.

Klippa: Jóladagatal Borgarleikhússins - 2. desember

Von er á sögum, söng og tónlist, fróðleik, gríni og gleði á hverjum degi fram að jólum frá Borgarleikhúsinu. Gluggar í Jóladagatali leikhússins verða birtir daglega hér á Vísi.


Tengdar fréttir

Missir alla stjórn á jólaskrautinu

Borgarleikhúsið býður landsmönnum öllum upp á veglega jóladagskrá í formi jóladagatals í ár. Á hverjum degi frá 1. til 24. desember verður opnaður gluggi og listamenn leikhússins gleðja með fjölbreyttum atriðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×