Jól

Missir alla stjórn á jólaskrautinu

Tinni Sveinsson skrifar
Einar í Jólaflækju er fenginn í spjall sem mikill áhugamaður um jólaskraut hvers konar.
Einar í Jólaflækju er fenginn í spjall sem mikill áhugamaður um jólaskraut hvers konar.

Borgarleikhúsið býður landsmönnum öllum upp á veglega jóladagskrá í formi jóladagatals í ár. Á hverjum degi frá 1. til 24. desember verður opnaður gluggi og listamenn leikhússins gleðja með fjölbreyttum atriðum.

Einar í Jólaflækju

Mörg börn kannast við hann Einar úr leikritinu Jólaflækju sem sýnt hefur verið í Borgarleikhúsinu undanfarin jól. Í jóladagatalinu í dag kemur hann í heimsókn í leikhúsið og kennir okkur hvernig best sé að skreyta fyrir jólin – enda sérlegur áhugamaður um jólin og jólaskraut.

Klippa: Jóladagatal Borgarleikhússins - 1. desember

Von er á sögum, söng og tónlist, fróðleik, gríni og gleði á hverjum degi fram að jólum frá Borgarleikhúsinu. Gluggar í Jóladagatali leikhússins verða birtir daglega hér á Vísi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×