Tólf undir pari eftir fyrsta hringinn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. október 2020 13:02 Brittany Lincicome lék vel á fyrsta hring KPMG Women's PGA Championship í gær. getty/Patrick Smith
Mikil spenna er eftir fyrsta hringinn á KPMG Women's PGA Championship, þriðja risamóti ársins í kvennaflokki. Leikið er á Aronimink Golf Club í Pennsylvaníu. Brittany Lincicome frá Bandaríkjunum og Kelly Tan frá Malasíu eru efstar og jafnar á þremur höggum undir pari. Sex kylfingar eru svo jafnir í 2. sæti á tveimur höggum undir pari. Meðal þeirra er Danielle Kang sem vann mótið fyrir þremur árum og er í 3. sæti heimslistans. Alls léku tólf kylfingar undir pari á fyrsta hringum, þar af þrír Svíar: Linnea Ström, Anna Nordqvist og Pernilla Lindberg. Hannah Green frá Ástralíu, sigurvegari síðasta árs, náði sér engan veginn á strik á fyrsta hringnum og lék hann á níu höggum yfir pari. Hún er í 124. sæti. Bein útsending frá öðrum hring KPMG Women's PGA Championship hefst klukkan 17:00 á Stöð 2 Golf.
Golf Mest lesið Steig á tána á Mike Tyson Sport Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Infantino lét grafa nafnið sitt tvisvar á nýja bikarinn fyrir HM félagsliða Fótbolti Baldur veit ekki hvort hann fái að þjálfa ÍR-liðið áfram Körfubolti Ronaldo skoraði tvö í markaveislu Portúgala í lokin Fótbolti „Ég hef séð svona veikleikamerki hjá liðinu“ Körfubolti Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 78-101| Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta Körfubolti Sjáðu Tyson slá Jake Paul á vigtuninni Sport Evrópumeistararnir fögnuðu sigri á Parken Fótbolti Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Körfubolti Fleiri fréttir McIlroy skaut niður dróna „Orðinn þreyttur á Venna strax á fyrstu holu“ McIlroy kemur „úr felum“ eftir óvenjulegar æfingabúðir Golfstjarnan mætti á upp svið með Trump Kylfingur blindur á auga eftir golfbolta Hundur hljóp inn á og stal golfkúlu Bales Sigurður sótti silfur fyrstur Íslendinga til Makaó: „Rosalega stoltur“ Íslendingur efstur í Arkansas: „Hann er nýnemi!“ Sjá meira