Kanye West segist ætla að bjóða sig fram til forseta Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 5. júlí 2020 08:05 Kanye West þegar hann fundaðu með Donald Trump í desember árið 2018. Getty/Ron Sachs
Svo virðist sem að bandaríski tónlistarmaðurinn Kanye West hafi í hyggju að bjóða sig fram til forseta Bandaríkjanna. Þetta kemur fram í tísti frá West. „Við verðum að uppfylla fyrirheit Bandaríkjanna með því að treysta guði, sameina sýn okkar og byggja fyrir framtíðina. Ég býð mig fram til forseta Bandaríkjanna,“ skrifar West á Twitter og bætir við myllumerkinu #2020VISION sem fjölmiðlar í Bandaríkjunum segja vísbendingu um að West hyggist bjóða sig fram í kosningunum sem fara fram í nóvember ytra. We must now realize the promise of America by trusting God, unifying our vision and building our future. I am running for president of the United States 🇺🇸! #2020VISION— ye (@kanyewest) July 5, 2020 Í frétt LA Times segir að ekki liggi fyrir hvort að West sé alvara með orðum hans þar sem ekki sé ljóst hvort að hann hafi skilað inn þeim pappírum sem þarf til þess að bjóða sig fram til forseta Bandaríkjanna. Tíst West hefur fengið mikil viðbrögð og hefur því þegar verið endurtíst um 400 þúsund sinnum. Frumkvöðullinn Elon Musk sagðist meðal annars ætla að styðja West Margir virðast velta því fyrir sér hvað West hafi í hyggju með þessari tilkynningu en hann gaf á dögunum út nýtt lag, en von er á nýrri plötu frá kappanum. West hefur talað um aðdáun sína á Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, og meðal annars fundað með honum í Hvíta húsinu.
Bandaríkin Forsetakosningar í Bandaríkjunum Tónlist Mest lesið „Hvers konar hrokasvar er þetta?“ Innlent „Eins og við séum gleymd, bara einhver skóli úti á landi“ Innlent „Hálfur millimetri í aðra hvora áttina, þá hefði hann ekki lifað af“ Innlent Áfallið mikið en „svo er bara að bretta upp ermar“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Upplifir mikið vonleysi og gengur á sumarfrísdagana Innlent Þúsundir hænsna drápust í bruna á eggjabúi við Voga Innlent Segir verkföll ekki mismuna börnum Innlent Nýr prófastur ætlar ekki að hætta með kindurnar sínar Innlent Formaður Kennarasambandsins svarar gagnrýni Innlent Fleiri fréttir Úkraínumönnum heimilt að beita langdrægum eldflaugum Felldu talsmann Hezbollah í miðborg Beirút Stefna lögreglu og leyniþjónustu vegna morðsins á Malcolm X Norsku skipagöngin á leið í útboðsferli Einar umfangsmestu loftárásir Rússa á orkuvinnviði Úkraínu Viss um að stríðinu muni ljúka fyrr en ella vegna kjörs Trump Tíu ungbörn létust og sextán særðust í eldsvoða á nýburadeild Rússar segja til hver annars líkt og á tímum Stalíns Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Næstu mánuðir skipta sköpum Neitar að segja ef sér þrátt fyrir hávær áköll Töluðu saman í fyrsta sinn í tvö ár Þrýst á Scholz að víkja fyrir vinsælasta stjórnmálamanni landsins Sprengdu upp leynilega kjarnorkuvopnarannsóknarstöð í Íran Fangelsaðar fyrir að gagnrýna forsetann og klæðaburð Musk sagður hafa átt fund með sendiherra Íran Segja loftslagsráðstefnurnar ekki lengur þjóna tilgangi sínum Leita óprúttins aðila sem kveikti í kjörkössum Trump setur Kennedy í heilbrigðismálin Ætla ekki að aðstoða hundruð manna í lokaðri námu The Onion kaupir InfoWars Vill sýna þinginu hver ræður Sprengdi sig upp fyrir utan hæstarétt Brasilíu Um 800 milljónir manna í heiminum með sykursýki Vilja svipta Le Pen frelsinu og kjörgengi í fimm ár Tilnefning Gaetz sem dómsmálaráðherra vekur furðu og reiði Repúblikanar með Hvíta húsið og allt þingið undir sinni stjórn „Valdaskiptin munu ganga svo smurt fyrir sig“ Melania Trump afþakkaði boð Jill Biden Stefnir í hreinsanir innan Pentagon Ætlar að hætta áður en Trump rekur hann Sjá meira