Golf

Stóri bróðir stöðvaði Kristófer og sendi Harald áfram - Ragnhildur og Jóhanna í átta manna úrslit eftir bráðabana

Sindri Sverrisson skrifar
Hinn átján ára gamli Kristófer Karl Karlsson vann óvæntan sigur á Haraldi Franklín Magnús í gær en tapaði fyrir stóra bróður sínum í dag.
Hinn átján ára gamli Kristófer Karl Karlsson vann óvæntan sigur á Haraldi Franklín Magnús í gær en tapaði fyrir stóra bróður sínum í dag. mynd/[email protected]

Það var gríðarleg spenna í lokaumferð riðlakeppninar á Íslandsmótinu í holukeppni í golfi á Akureyri í dag. Nú er orðið ljóst hvaða kylfingar leika í átta manna úrslitum karla og kvenna.

Mosfellingurinn Kristófer Karl Karlsson vann atvinnukylfinginn Harald Franklín Magnús í gær en náði ekki að fylgja því eftir í dag. Kristófer tapaði fyrir eldri bróður sínum, Theodór Emil, í æsipennandi bráðabana og þar með höfðu þeir, og Haraldur, unnið tvo leiki hver. Haraldur komst í átta manna úrslitin á fleiri unnum holum þegar allt er talið í leikjunum.

Ragnhildur Kristinsdóttir á röltinu um Jaðarsvöll.mynd/[email protected]

Mikil spenna var einnig hjá Reykvíkingunum Ragnhildi Kristinsdóttur og Nínu Margréti Valtýsdóttur en Ragnhildur vann á fyrstu holu í bráðabana og kom sér í átta manna úrslitin. Aðrar af sigurstranglegustu kylfingunum í kvennaflokki; Valdís Þóra Jónsdóttir, Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Guðrún Brá Björgvinsdóttir, komust áfram af nokkru öryggi.

Nína Margrét fékk annan séns þegar þrír kylfingar með bestan árangur í 2. sæti börðust um síðasta sætið í átta manna úrslitum kvenna, í bráðabana. Andrea Ýr Ásmundsdóttir og Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir léku einnig í umspilinu og var það Jóhanna sem vann sigur.

Ragnhildur Kristinsdóttir, GR – Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir, GR

Valdís Þóra Jónsdóttir, GL – Eva Karen Björnsdóttir, GR

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK – Heiðrún Anna Hlynsdóttir, GOS

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR – Saga Traustadóttir, GR

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR – Andri Már Óskarsson, GOS

Hákon Örn Magnúsons, GR – Aron Snær Júlíusson, GKG

Haraldur Franklín Magnús, GR – Ólafur Björn Loftsson, GKG

Axel Bóasson, GK – Andri Þór Björnsson, GR

Átta manna úrslitin fara fram í dag. Undanúrslit og úrslit eru svo á morgun.

Öll úrslit á mótinu má sjá með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×