Sport

Landsmóti hestamanna 2020 frestað

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hafsteinn frá Vakurstöðum og Teitur Árnason sigurvegarar í A-flokki gæðinga á flugskeiði á Landsmótinu 2018.
Hafsteinn frá Vakurstöðum og Teitur Árnason sigurvegarar í A-flokki gæðinga á flugskeiði á Landsmótinu 2018. VÍSIR/BJARNI ÞÓR

Landsmóti hestamanna sem fara átti fram á Hellu í sumar hefur verið frestað. Mótið fer fram á Hellu sumarið 2022 í staðinn. Af þeim sökum verður Landsmót hestamanna haldið í Kópavogi og Garðabæ árið 2024 í stað 2022 eins og samningar gerðu ráð fyrir.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eiríki Vilhelm Sigurðarsyni, framkvæmdastjóra Landsmótsins. Þar segir að ákvörðunin hafi verið tekin af af Landssambandi hestamannafélaga, Félagi hrossabænda og Rangárbökkum, þjóðaleikvangi íslenska hestsins ehf. 

Þeim aðilum sem sótt höfðu um að halda landsmótið 2024 hefur verið gefin kostur á að færa þær umsóknir yfir á landsmótið árið 2026.

„Sú heilsufarsvá sem stafar af COVID-19 faraldrinum á heimsvísu er ekki liðin hjá og mun hafa ýmsar takmarkanir í för með sér á næstu mánuðum. Í máli sóttvarnalæknis, Þórólfs Guðnasonar hefur komið fram að fjöldasamkomur skuli takmarkaðar við 2000 manns a.m.k. út ágústmánuð. Landsmót hestamanna er því of fjölmenn samkoma til að hægt sé að halda hana í sumar,“ segir í tilkynningunni.

Þeir sem keypt hafa miða á viðburðinn munu fá tölvupóst frá tix miðasölu ásamt því að allar upplýsingar eru aðgengilegar á www.landsmot.is. Miðahafar geta valið um þrennt: 

a) fá endurgreitt 

b) láta miðann gilda fram til 2022

c) styrkja viðburðinn. 

Allar bókanir á tjaldsvæðum verða endurgreiddar. Fyrirspurnir varðandi viðburðinn skal senda á [email protected] en varðandi miðasölu á [email protected].

„Öll él styttir upp um síðir. Málsaðilar senda hestamönnum baráttukveðjur og hvetja til þess að allir fari að útgefnum reglum og tilmælum Almannavarna ríkislögreglustjóra.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×