Jól

Gáttaþefur kom í nótt

Grýla skrifar
Gáttaþefur gat fundið lykt af nýsteiktu brauði langar leiðir.
Gáttaþefur gat fundið lykt af nýsteiktu brauði langar leiðir. Halldór

Gáttaþefur er ellefti jólasveinninn sem kemur til byggða. Með sitt heljarstóra nef gat hann fundið lykt af nýsteiktu brauði langar leiðir og runnið þannig á sinn uppáhaldsmat, laufabrauð.

Í ljóðinu Jólasveinarnir eftir Jóhannes úr Kötlum segir:

  • Ellefti var Gáttaþefur,
  • - aldrei fékk sá kvef,
  • og hafði þó svo hlálegt
  • og heljarstórt nef.
  • Hann ilm af laufabrauði
  • upp á heiðar fann,
  • og léttur, eins og reykur,
  • á lyktina rann.

Kvæði Jóhannesar úr Kötlum er birt með góðfúslegu leyfi Svans Jóhannessonar. Nánar má lesa um skáldið á vefnum johannes.is.

Hér fyrir neðan syngur Gáttaþefur lagið Jólasveinn, aðlögun að Supermann með Ladda, í gömlu myndbandi frá Jolasveinarnir.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×