Jól

Glugga­gægir kom til byggða í nótt

Grýla skrifar
Gluggagægir leit inn um skjáinn.
Gluggagægir leit inn um skjáinn. Halldór

Gluggagægir er sjötti jólasveinninn sem kemur til byggða. Hann gægðist inn um hvern glugga til að reyna að koma auga á eitthvað sem hann gæti hnuplað.

Í ljóðinu Jólasveinarnir eftir Jóhannes úr Kötlum segir:

  • Tíundi var Gluggagægir,
  • grályndur mann,
  • sem laumaðist á skjáinn
  • og leit inn um hann.


  • Ef eitthvað var þar inni
  • álitlegt að sjá,
  • hann oftast nær seinna
  • í það reyndi að ná.

Kvæði Jóhannesar úr Kötlum er birt með góðfúslegu leyfi Svans Jóhannessonar. Nánar má lesa um skáldið á vefnum johannes.is.

Hér fyrir neðan syngur Gluggagægir lagið Ég sá mömmu kyssa jólasvein í gömlu myndbandi frá Jolasveinarnir.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×