Jól

Jóladagatal Vísis: Benedikt Erlingsson gerir Sigurjóni erfitt fyrir í Tvímælalaust

Hjalti Freyr Ragnarsson skrifar
Þorsteinn Guðmundsson reyndi að aðstoða Sigurjón Kjartansson í að kveða niður uppreisnarhegðun Benedikts.
Þorsteinn Guðmundsson reyndi að aðstoða Sigurjón Kjartansson í að kveða niður uppreisnarhegðun Benedikts. skjáskot

Upp er runninn 22. desember og fjórði í aðventu genginn í garð. Aðeins tveir dagar eru til jóla og lokaskrefin víða tekin í undirbúningi.

Vísir ætlar að gleðja lesendur sína með jóladagatali þar sem leitað verður í gullkistuna á sjónvarps- og útvarpsvefnum. Óhætt er að segja að þar sé hægt að gleyma sér við áhorf á gamalt og gott efni.

Sigurjón Kjartansson stýrði þátttunum Tvímælalaust á Stöð 2 með aðstoð Jóns Gnarr árið 2011. Í klippunni hér að neðan mætast þrír fyrrum Fóstbræður, þeir Sigurjón, Þorsteinn Guðmundsson og Benedikt Erlingsson. Benedikt var þó ekki á þeim buxunum að láta viðtalið ganga smurt og þægilega fyrir sig heldur vakti í sí og æ athygli á óþarflegum léttúðugleika viðfangsefnisins, og vildi ólmur tala um mikilvægari hluti.

Í undirflokk Tvímælalaust á sjónvarpsvef Vísis má finna ýmsa gullmola. Hér er til að mynda símtal þeirra Tvíhöfðabræðra á þýskan pöbb, þar sem þeir kynntu Þjóðverjann á hinum enda línunnar fyrir þáverandi borgarstjóra Reykjavíkur.

Hér er svo stórskemmtilegt viðtal kumpánanna við Friðrik Weisshappel hönnuð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×