Jól

Jóladagatal Vísis: Kalli Bjarni syngur fyrir ömmu sína

Hjalti Freyr Ragnarsson skrifar
Kalli Bjarni bjó hjá ömmu sinni í fjórtán ár.
Kalli Bjarni bjó hjá ömmu sinni í fjórtán ár.

Upp er runninn Þorláksmessa, 23. desember og jólin á morgun. Skötuanganin fyllir vitin. Eins manns ilmur er annars manns daunn.

Vísir ætlar að gleðja lesendur sína með jóladagatali þar sem leitað verður í gullkistuna á sjónvarps- og útvarpsvefnum. Óhætt er að segja að þar sé hægt að gleyma sér við áhorf á gamalt og gott efni.

Tónlistarmaðurinn og sjóarinn Karl Bjarni Guðmundsson var til umfjöllunar í þættinum Burðardýr á Stöð 2 í febrúar 2018. Kalli Bjarni sagði sögu sína í þættinum en hann var dæmdur fyrir fíkniefnasmygl árið 2007. Hann var þá tekinn með tvö kíló af kókaíni á Keflavíkurflugvelli.

Eitt sem vakti sérstaka athygli í þættinum var flutningur Kalla á laginu Kesäpäivä Kangasalla til ömmu sinnar.  Umrædd kona er í raun ekki skyld Kalla, en ól hann þó upp og hefur söngvarinn ávallt kallað hana ömmu sína.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×