Jól

Jóladagatal Vísis: Svona var FM95BLÖ kynntur til leiks fyrir átta árum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Björn Bragi, Sveppi Krull, Hjörvar Hafliðason og Egill Gillzenegger voru í aðalhlutverkum í myndbandinu.
Björn Bragi, Sveppi Krull, Hjörvar Hafliðason og Egill Gillzenegger voru í aðalhlutverkum í myndbandinu.

Þrettándi desember er runninn upp og ellefu dagar til jóla.

Vísir ætlar að gleðja lesendur sína með jóladagatali þar sem leitað verður í gullkistuna á sjónvarps- og útvarpsvefnum. Óhætt er að segja að þar sé hægt að gleyma sér við áhorf á gamalt og gott efni.

Hér að neðan má sjá eftirminnilegt tónlistarmyndband frá því í nóvember 2011 þegar Auðunn Blöndal hugðist fara í loftið með útvarpsþátt að nafni FM95Blö á FM957. Átta árum síðar er þátturinn einn sá allra vinsælasti í íslensku útvarpi en hann er einmitt á dagskrá FM957 klukkan 16 í dag.

Björn Bragi, Sveppi, Hjörvar Hafliðason og Egill Gillzenegger voru í aðalhlutverkum í myndbandinu en fjölmargir til viðbótar hafa verið í aðalhlutverki í þáttunum undanfarin ár. Myndbandinu var leikstýrt af Samúel Bjarka Péturssyni og Gunnari Páli Ólafssyni.

Auðunn Blöndal ræddi sögu FM95BLÖ í Einkalífinu í þessari viku en þátturinn var gefinn út í gær á Vísi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×