Fjörugt jafntefli í Bristol Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 31. ágúst 2019 13:30 Það gekk mikið á í leiknum í dag en hvorugu liði tókst að sækja sigurinn vísir/getty Tommy Rowe tryggði Bristol City jafntefli gegn Middlesbrough í fyrsta leik dagsins í ensku Championship deildinni í dag. Heimamenn í Bristol komust yfir undir lok fyrri hálfleiks þegar Kasey Palmer skallaði boltann í netið eftir fyrirgjöf frá Niclas Eliasson. Það var leikmaður Bristol sem jafnaði metin þegar Taylor Moore varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net á 64. mínútu. Britt Assombalonga kom Middlesbrough svo yfir fjórum mínútum seinna með sínu 100. deildarmarki. Nokkuð gegn gangi leiksins jafnaði Rowe metin á 81. mínútu. Middlesdbrough var sterkari aðilinn í seinni hálfeik en náði ekki að sækja sér annað mark og þar með sigurinn og urðu lokatölur 2-2. Enski boltinn
Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 75-96 | Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta fleytir Skagfirðingum á toppinn Körfubolti
Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 75-96 | Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta fleytir Skagfirðingum á toppinn Körfubolti