Sjálfsmark Zouma tryggði nýliðunum stig á Brúnni Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 31. ágúst 2019 16:00 Fyrsta mark Zouma í búningi Chelsea síðan 2016 var í eigið net vísir/getty Kurt Zouma kostaði Chelsea sigurinn gegn nýliðum Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni í dag. Heimamenn byrjuðu leikinn vel og skoraði Tammy Abraham fyrsta markið á 19. mínútu. Dean Henderson, markmaður Sheffield sem er á láni frá Manchester United, missti skalla Abraham undir pressu frá Christian Pulisic og ungi framherjinn potaði frákastinu í netið. Abraham bætti við öðru marki áður en hálfleikurinn var úti eftir mistök varnarmanna Sheffield. Staðan var 2-0 fyrir Chelsea í hálfeik. Nýliðarnir voru hins vegar ekki lengi að klóra í bakkann í seinni hálfeik og skoraði Callum Robinson strax á fyrstu mínútu hálfleiksins. Chelsea ógnaði marki Sheffield ekki mikið í seinni hálfleik og náðu gestirnir að halda stuðningsmönnum á tánum í leit að jöfnunarmarkinu. Chelsea virtist ætla að ná að hanga á sigrinum en á síðustu mínútum venjulegs leiktíma fór boltinn í mark Chelsea eftir fyrirgjöf frá Robinson. Boltinn fór af sköflungi Zouma og varð varnarmaðurinn því skúrkurinn fyrir Chelsea. Lokatölur urðu 2-2 og fara nýliðarnir líklega sáttir heim með vel sótt stig á meðan það slökknaði of mikið á Chelsea liðinu í seinni hálfleik. Chelsea og Sheffield eru bæði með fimm stig eftir fjóra leiki í deildinni. Enski boltinn
Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 75-96 | Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta fleytir Skagfirðingum á toppinn Körfubolti
Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 75-96 | Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta fleytir Skagfirðingum á toppinn Körfubolti