Golf

Saga Íslandsmeistari í fyrsta sinn og Rúnar varði titilinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Saga og Rúnar með verðlaunagripina.
Saga og Rúnar með verðlaunagripina. mynd/[email protected]
Saga Traustadóttir, GR, og Rúnar Arnórsson, GK, eru Íslandsmeistarar í holukeppni 2019.

Þau hrósuðu sigri á Securitas-mótinu sem lauk á Garðavelli á Akranesi í dag. Alls tóku 32 karlar og 23 konur þátt.

Í úrslitaleiknum í kvennaflokki sigraði Saga Ragnhildi Kristinsdóttur, GR, eftir bráðabana. Saga vann þarna sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í holukeppni.

Hulda Clara Gestsdóttir, GKG, sigraði Amöndu Guðrúnu Bjarnadóttur, GHD, í leiknum um 3. sætið, 5/4.

Rúnar sigraði Ólaf Björn Loftsson, GKG, í úrslitaleiknum í karlaflokki, 3/2. Rúnar varð þar með Íslandsmeistari annað árið í röð.

Í leiknum um 3. sætið vann Jóhannes Guðmundsson samherja sinn úr GR, Arnór Inga Finnbjörnsson, eftir bráðabana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×