Skoðun

Stuðningur og ráðgjöf vegna krabbameina

Lóa Björk Ólafsdóttir skrifar
Að greinast með krabbamein er flestum mikið áfall og einnig þeim sem nákomnir eru. Margir fara í gegnum erfiðar tilfinningar eins og ótta, reiði, örvæntingu, depurð og sektarkennd auk þess sem óvissan um framtíðina getur tekið mikið á. Það er oft þarna sem viðkomandi og hans nánustu uppgötva í fyrsta sinn að þessi daglega rútína, eins og að fara til vinnu, sinna heimili og áhugamálum, er dýrmætari en við gerum okkur oft grein fyrir.

Það getur reynt verulega á að vera kippt skyndilega út úr hinu venjubundna lífi inn í heim veikindanna. Það ræðst þó oft af eðli sjúkdómsins og einstaklingsbundnum þáttum hversu mikil áhrif krabbameinið og meðferð hefur á líf fólks. Sennilega er þó óhætt að fullyrða að áhrifin séu alltaf einhver á daglegt líf, andlegt jafnvægi og lífssýn viðkomandi.

Rannsóknir sýna að einstaklingar sem greinast með krabbamein og aðstandendur þeirra hafa ríka þörf fyrir sálfélagslegan stuðning, bæði í veikindunum og eftir að krabbameinsmeðferð lýkur.

Í dag læknast mun fleiri af krabbameini en áður og einnig eru fleiri sem lifa með ólæknandi krabbamein í lengri tíma en áður hefur þekkst. Þetta eru gleðilegar staðreyndir sem kalla hins vegar á aukinn stuðning við þá sem takast á við einkenni og fylgikvilla til lengri tíma vegna krabbameins eða krabbameinsmeðferðar.

Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins býður upp á ráðgjöf og stuðning við þá sem hafa greinst með krabbamein og aðstandendur þeirra. Fjölbreytt námskeið og opnir tímar eru einnig í boði. Þjónustan er einnig ætluð þeim sem hafa misst ástvin úr krabbameini. Ráðgjafarþjónustan hefur aðsetur í húsi Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8, á fyrstu hæð í heimilislegu og notalegu rými. Þar starfa sem ráðgjafar hjúkrunarfræðingar, félagsráðgjafar, sálfræðingur og kynfræðingur. Viðtalsþjónustan er fólki að kostnaðarlausu.

Starfsemin miðar að því að gefa viðkomandi verkfæri í hendurnar til að takast á við tilfinningar, hugsanir, streitu og líkamleg einkenni sem geta komið upp í veikindunum og eftir veikindin. Það er mikilvægt að þeir sem hafa greinst með krabbamein og aðstandendur þeirra leiti eftir þessum verkfærum til að vinna úr reynslu sinni og til að geta sem best hugað að sér og sinni líkamlegu og andlegu heilsu til framtíðar. Nánari upplýsingar er að finna á krabb.is.

Í tilefni af Alþjóðlega krabbameinsdeginum, 4. febrúar, hafa krabbameinsfélög um allan heim sameinast í þriggja ára herferð sem gengur út á að fækka krabbameins­tilfellum með forvörnum, þekkingu á einkennum, greiningu og meðferð. Hluti meðferðar er að hlúa á heildrænan hátt að þörfum þeirra sem greinast með krabbamein og aðstandenda. Þar getum við orðið að liði með margþættum stuðningi og ráðgjöf. Við erum við símann á virkum dögum og hvetjum þá sem þurfa ráðgjöf eða stuðning til að hringja í síma 800 4040 eða senda okkur tölvupóst á netfangið [email protected].






Skoðun

Sjá meira


×