Stelpurnar ekki á topp 20 á heimslistanum í fyrsta sinn í eitt ár Tómas Þór Þórðarson skrifar 28. september 2018 09:51 Sara Björk Gunnarsdóttir var einni vítaspyrnu frá því að koma Íslandi í umspilið. vísir/daníel
Stelpurnar okkar í kvennalandsliðinu í fótbolta falla um þrjú sæti á nýjum heimslista FIFA sem birtur var í morgun en okkar konur eru í 22. sæti listans. Þetta er í fyrsta sinn í rúmt ár sem íslenska kvennalandsliðið er ekki á meðal þeirra 20 bestu í heiminum en þær voru í 21. sæti á listanum sem birtur var 1. september 2017. Stelpurnar okkar komust í 20. sætið í desember 2017 og voru í 19. sæti á listunum í mars og júní á þessu ári. Nú eru þær komnar niður fyrir topp 20 í 22. sætið á eftir Austurríki en á undan Belgíu. Ísland tapaði fyrir Þýskalandi og gerði jafntefli við Tékkland í síðustu tveimur leikjunum í undankeppni HM 2019 og komst ekki í umspil um sæti á mótinu sem fram fer í Frakklandi á næsta ári. Íslenska liðið er í 13. sæti á Evrópulistanum en næsta stóra verkefni stelpnanna okkar er undankeppni EM 2021 sem fram fer á Englandi. Bandaríkin halda toppsætinu og Þjóðverjar eru í öðru sæti eins og á síðasta lista en enska landsliðið fer upp í þriðja sætið á kostnað Frakklands. Kanada er í fimmta sæti.Allan listann má sjá hér.
Íslenski boltinn Mest lesið Gripið um hreðjar Stefáns Teits: „Þetta er ekki löglegt“ Fótbolti Mætti með myndabók af íslensku leikmönnunum á flugvöllinn Fótbolti Aðstoðarþjálfari Ungverjalands hné niður Fótbolti Sir Mo Farah elti uppi þjófa sem stálu símanum hans Sport Tyson eftir tapið gegn Paul: „Ég dó næstum því í júní“ Sport Markvörður Bayern með krabbamein Fótbolti Ótrúleg mistök þegar Sveindís og Wolfsburg unnu örugglega Fótbolti Meiddi sig eftir misheppnað siuu fagn Fótbolti Dagskráin í dag: Heimir mætir Englendingum á Wembley Sport „Mjög sátt, spennt og stolt að vera hluti af þessu“ Fótbolti Fleiri fréttir Í beinni: England - Írland | Heimir gæti gert enskum grikk Glódís kom Bæjurum á bragðið með hörkuskalla Mætti með myndabók af íslensku leikmönnunum á flugvöllinn Meiddi sig eftir misheppnað siuu fagn Birkir Valur yfirgefur HK Aðstoðarþjálfari Ungverjalands hné niður „Mjög sátt, spennt og stolt að vera hluti af þessu“ Markvörður Bayern með krabbamein Gripið um hreðjar Stefáns Teits: „Þetta er ekki löglegt“ Ótrúleg mistök þegar Sveindís og Wolfsburg unnu örugglega Risasigur hjá Þjóðverjum og stórstjörnurnar skoruðu fyrir Svía Cecilía hélt hreinu í góðum sigri Markalaust jafntefli tryggði Íslandi úrslitaleik á þriðjudag „Við munum þurfa að finna út úr því vandamáli á morgun“ Ísak Bergmann fær hrós á X: „Åge svelt hann með landsliðinu“ „Spila oftast best þegar ég er reiður“ „Örugglega hræðilegt að horfa á þetta“ „Við vissum að þetta yrði smá hark“ Einkunnir Íslands: Innkoma Ísaks breytti leiknum Aron Einar meiddur af velli eftir tuttugu mínútur Aron Einar miðvörður í Niksic Umfjöllun: Svartfjallaland - Ísland 0-2 | Ísland í spennandi stöðu Sveindís og stöllur með fimm stiga forskot á toppnum Sædís skoraði annan deildarleikinn í röð Sjálfsmark skildi að og strákarnir komnir á næsta stig Van Nistelrooy sækir um stjórastarfið hjá Coventry Árekstur í beinni er hitað var upp fyrir leik Íslands Sárafáir Íslendingar á meðal 4.000 áhorfenda á leik dagsins „Þeir hafa bætt sig frá því síðast en við einnig“ „Menn verða betri með hverju verkefninu sýnist mér“ Sjá meira