Frelsandi að gefa út efni ein Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 24. apríl 2018 14:00 SURA, eða Þura Stína, stefnir á að gefa út plötu á næstunni. Vísir/Vilhelm
Þura Stína Kristleifsdóttir, betur þekkt sem Þura Stína eða SURA, hefur komið víða við. Hún starfar sem grafískur hönnuður, plötusnúður og tónlistarkona. Tónlistarferil hennar má rekja aftur í Söngvaborg 1, Skrekk, Samfés og Rímnaflæði. Hún hefur spilað á rauðvínsglös í indie-hljómsveit og er hluti af Reykjavíkurdætrum og í dag gaf hún út sitt fyrsta lag sem sóló-listamaður. Lagið heitir Komast upp og er aðgengilegt á Spotify. Í maí stefnir SURA á að gefa út annað lag og hefjast tökur fyrir tónlistarmyndband um næstu helgi. Stefnan er svo sett á að gefa út plötu og hefur SURA notið aðstoðar Björns Vals Pálssonar við upptökur, sem hefur unnið mikið með Emmsjé Gauta og Úlfi Úlfi síðustu ár.Alltaf nóg að gera Innblástur fyrir sína fyrstu smáskífu fann Þura í eigin lífi. Myndlíking um að drukkna ekki í verkefnum dagsins. „Þetta er svolítið bara það sem ég er búin að vera, það sem er búið að vera í gangi hjá mér síðasta ári. Þetta er vísun í að við erum að gera of mikið, eða ég allavega. Þér líður eins og þú sért að drukkna og svo ertu að reyna að djöggla öllu á sama tíma. Þetta er rosa mikið bara mitt líf síðasta árið,“ segir SURA í samtali við Vísi. Það er ekki langt að sækja innblásturinn en hún var í vinnunni hjá auglýsingastofunni Brandenburg þar sem hún starfar sem grafískur hönnuður þegar blaðamaður náði af henni tali. Kvöldið áður hafði hún komið úr tónleikaferð frá Noregi með Reykjavíkurdætrum. Samhliða dagvinnu og tónleikaferðum er SURA einnig hluti af CYBER, hljómsveit sem spratt út frá Reykjavíkurdætrum og hún er einnig eftirsóttur plötusnúður.Munur að koma ein fram SURA er vön því að koma fram í hóp þegar hún spilar á tónleikum og hún segir að það sé ákveðið stökk að fara út í að gefa út efni og koma fram ein. Hún er nokkrum sinnum búin að flytja eigið efni, meðal annars á Aldrei fór ég suður. „Það er rosa munur. Það er rosa krefjandi allt í einu. Maður er alltaf með einhvern til að bakka sig upp. Þú ert miklu berskjaldaðri, stendur þarna einn og það er allt annað. En á sama tíma er þetta rosalega frelsandi, eins og það er æðislegt að vinna með fólki þegar maður er semja tónlist þá er líka rosa frelsandi að vera einn og vinna út frá sínum forsendum og ótrúlega spennandi og gaman,“ segir SURA. Hún tekur hljómsveitina CYBER sem dæmi, sem er ásamt henni skipuð Sölku Valsdóttur og Jóhönnu Rakel Jónasdóttur. Samhliða sveitinni vinna þær allar í eigin efni. „Mér finnst það æði, að vera bæði í nánu samstarfi í öllu ferlinu með hljómsveitinni sinni og svo líka að vera að gera sjálfur út frá sínu. Það er mjög ólíkt.“Þura Stína segir að vitundarvakning hafi orðið hjá tónleikahöldurum landsins.Mynd/Saga SigTónlistarsenan ekki lokuð Aðspurð segist SURA ekki hafa miklar áhyggjur af því að tónlistarsenan á Íslandi sé karllæg, sem listamaður sem er að stíga fyrstu skref með sóló efni. Hún segir að vitundarvakning hafi orðið hjá tónleikahöldurum um að bóka fleiri konur og nefnir til dæmis atvik í fyrra þegar tónlistarkonur voru beðnar að auglýsa tónleika Young Thug vegna þess hve stór hluti tónleikagesta væru ungir karlmenn. „Ég held að það sé vakning þar megin, hjá tónleikahöldurum. En fyrir mér er senan ekki lokuð inn á við. Ég finn ekki fyrir því frá strákum innan senunnar að maður sé ekki velkominn eða þannig. En það kannski upplifa það ekki allir eins og ég,“ segir SURA. Hún gekk til liðs við Reykjavíkurdætur árið 2016, eftir að mesta fjaðrafokið í kringum sveitina var gengið niður. Hún segir að líklega megi að einhverju leyti rekja vitundarvakningu til baráttu sveitarinnar. „Ég var ekki í Reykjavíkurdætrum í byrjun þegar þetta var sem hæst en ég er rosalega þakklát fyrir þær af því að það er búið að skapa pláss og búa til rými. Þær eru búnar að gera, held ég, ótrúlega mikið og við sjáum að eftir að þær koma fram þá er stelpa búin að vinna rímnaflæði. Þegar ég var í rímnaflæði var ég eina stelpan og það var ógeðslega erfitt og ég vann einhverja stráka í skólanum mínum og ég þorði ekki að vera ein. Ég bað aðra stelpu að koma með mér því maður mætti eiginlega alls staðar lokuðum dyrum. Þannig að ég hætti og fór í indie-hljómsveit eða eitthvað. Það var ekki til neitt pláss og þú varst að stíga inn í svo rosa lokaðan heim þá. Þarna er ég tólf ára. Ég er rosalega þakklát fyrir Reykjavíkurdætur og það sem þær hafa gert samfélagslega og í tónlistarheiminum.“
Mest lesið „Ég þori alveg að fullyrða að ég er skítsæmileg móðir“ Lífið „Það er enginn séns að reyna alltaf að útskýra sig“ Tónlist Hundruðum svekktra tónleikagesta vísað frá Hvalasafninu Lífið Endurgreiða alla miða ef tónleikahald tekst ekki í kvöld Lífið Frelsaði húsgögn Brynhildar Lífið Fréttatían: Mannlíf, ferðamenn og Trump Lífið Skautadiskó til styrktar góðu málefni Lífið samstarf Hafa bæði kvatt sín fyrrverandi og eru alsæl saman Lífið Tengdadóttir forsætisráðherra í innsta koppi Loftssystkina Lífið Skellti sér á djammið Lífið Fleiri fréttir „Það er enginn séns að reyna alltaf að útskýra sig“ HAM reið á vaðið í fiskabúri X-ins 977 Létu ævintýrið loksins rætast í fiskabúrinu á X-inu „Stórir hlutir að koma og fólk þarf að vera tilbúið“ Emilíana Torrini heillaði tónleikagesti upp úr skónum Laufey naut lífsins með Ariönu Grande Rétta harmonikkan er í harmonikkuverksmiðju í harmonikkuþorpi Iceland Airwaves ýtt úr vör á Grund Fagna tuttugu ára afmæli og troða upp á Grund Segja aðra kaupa gervispilanir til að hafa áhrif á veðmál Young Thug játar sök en losnar úr fangelsi „Enginn þekkir mig og ég þekki engan, sem mér finnst þægilegt“ Laufey fagnaði með Oliviu Rodrigo og Chappell Roan Tileinkar lagið Grindvíkingum „Það hefur aldrei verið neinn ótti“ „Hugleikið hver fær að stunda kynlíf og hver ekki“ „Þetta er saga af villigötum“ „Enginn að fara að hringja í mig að fyrra bragði“ Kemur frá Sýrlandi og syngur á íslensku Space Odyssey opnar á nýjum stað Dr. Gunni spyr hvort það sé ekki bara búið að vera gaman Afhjúpað á hvaða dögum böndin spila á Airwaves Sjá meira