Ísraelar tilkynna byggingu þrjú þúsund heimila á Vesturbakkanum Samúel Karl Ólason skrifar 1. febrúar 2017 10:34
Yfirvöld í Ísrael hafa kynnt áætlanir um að byggja þrjú þúsund ný heimili á Vesturbakkanum. Um er að ræða fjórðu kynningu Ísraela um nýjar landtökubyggðir á þeim tæpu tveimur vikum sem Donald Trump hefur setið í embætti forseta Bandaríkjanna. Frá innsetningarathöfn Trump hefur verið kynnt að til standi að byggja 566 heimili í herteknum hluta austur-Jerúsalem og 5.502 heimili á Vesturbakkanum. Á sama tíma hafa öryggissveitir Ísrael hafið brottflutning landnema frá landtökubyggðinni Amona á Vesturbakkanum, þar sem til stendur að rífa fjölda heimila. Hæstiréttur Ísrael hefur úrskurðað að byggðin hafi verið byggð á ólöglegum stað, en deilur hafa staðið um hana í marga mánuði. Mótmælendur hafa kveikt elda í kringum byggðina.Samkvæmt AFP fréttaveitunni hefur niðurrif Amona verið verulega óvinsæl aðgerð meðal harðlínumanna innan hægri-sinnaðri ríkisstjórn Ísrael og er yfirlýsingin um nýjustu landtökubyggðina sögð vera til þess að friða þá. Donald Trump hefur heitið auknum stuðningi við Ísrael og hefur jafnvel talað um að flytja sendiráð Bandaríkjanna í Ísrael frá Tel Aviv til Jerúsalem. Palestínskir embættismenn segja að það væri stríðsglæpur.
Donald Trump Mest lesið Jón Guðmundsson fasteignasali er látinn Innlent „Hvers konar hrokasvar er þetta?“ Innlent Vill ekki að talað sé um íslenska garðyrkju í þátíð Innlent Úkraínumönnum heimilt að beita langdrægum eldflaugum Erlent Alvarlegt bílslys við Þrastarlund og þrír fluttir með þyrlunni Innlent Börðust við eldinn klukkustundum saman í sex stiga frosti Innlent Upplifir mikið vonleysi og gengur á sumarfrísdagana Innlent Segir verkföll ekki mismuna börnum Innlent „Eins og við séum gleymd, bara einhver skóli úti á landi“ Innlent „Hálfur millimetri í aðra hvora áttina, þá hefði hann ekki lifað af“ Innlent Fleiri fréttir Úkraínumönnum heimilt að beita langdrægum eldflaugum Felldu talsmann Hezbollah í miðborg Beirút Stefna lögreglu og leyniþjónustu vegna morðsins á Malcolm X Norsku skipagöngin á leið í útboðsferli Einar umfangsmestu loftárásir Rússa á orkuvinnviði Úkraínu Viss um að stríðinu muni ljúka fyrr en ella vegna kjörs Trump Tíu ungbörn létust og sextán særðust í eldsvoða á nýburadeild Rússar segja til hver annars líkt og á tímum Stalíns Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Næstu mánuðir skipta sköpum Neitar að segja ef sér þrátt fyrir hávær áköll Töluðu saman í fyrsta sinn í tvö ár Þrýst á Scholz að víkja fyrir vinsælasta stjórnmálamanni landsins Sprengdu upp leynilega kjarnorkuvopnarannsóknarstöð í Íran Fangelsaðar fyrir að gagnrýna forsetann og klæðaburð Musk sagður hafa átt fund með sendiherra Íran Segja loftslagsráðstefnurnar ekki lengur þjóna tilgangi sínum Leita óprúttins aðila sem kveikti í kjörkössum Trump setur Kennedy í heilbrigðismálin Ætla ekki að aðstoða hundruð manna í lokaðri námu The Onion kaupir InfoWars Vill sýna þinginu hver ræður Sprengdi sig upp fyrir utan hæstarétt Brasilíu Um 800 milljónir manna í heiminum með sykursýki Vilja svipta Le Pen frelsinu og kjörgengi í fimm ár Tilnefning Gaetz sem dómsmálaráðherra vekur furðu og reiði Repúblikanar með Hvíta húsið og allt þingið undir sinni stjórn „Valdaskiptin munu ganga svo smurt fyrir sig“ Melania Trump afþakkaði boð Jill Biden Stefnir í hreinsanir innan Pentagon Ætlar að hætta áður en Trump rekur hann Sjá meira