Samstarf

Vísir mælist aftur stærstur

Tinni Sveinsson
Nokkrar fréttir af Vísi í liðinni viku sem vöktu athygli.
Nokkrar fréttir af Vísi í liðinni viku sem vöktu athygli. Vísir
Vísir er í fyrsta sæti yfir vinsælustu vefi landsins samkvæmt nýjum topplista Gallup aðra vikuna í röð. Vísir mældist með tæplega 167 þúsund íslenska notendur á dag að meðaltali yfir vikuna, sem náði frá 5. til 11. desember.

Virku dagana sóttu 176 þúsund notendur vefinn að meðaltali á dag og um helgina voru þeir 143 þúsund. Þá lásu einnig tæplega 29 þúsund erlendir notendur Vísi á dag.

Þennan mikla lesendafjölda má rekja til margra fréttamála sem dreifðu sér jafnt yfir vikuna.

Mælingar síðustu viku af Topplistavef Gallup.
Umfjöllun Láru Ómarsdóttur um lítt þekkta náttúruperlu, glæsilegur árangur Ólafíu Þórunnar Kristinsdóttur kylfings, frægðarför Tólfunnar til Lúxemborgar, IKEA-slys á íslensku heimili, deilur um kirkjuheimsóknir grunnskólabarna og afsökunarbeiðni útvarpsmanns voru á meðal frétta sem vöktu mikla athygli. Þá voru fréttir af fjárlagafrumvarpinu og áframhaldandi stjórnarmyndunarviðræðum fyrirferðamiklar.

Næsti vefur á listanum er mbl.is með um 163 þúsund notendur á dag. Því næst kemur DV með 77 þúsund, RÚV með 54 þúsund og Já með 52 þúsund notendur á dag.

Gallup heldur utan um mælinguna og er hægt að rýna nánar í tölurnar á síðunni topplistar.gallup.is. Á síðunni er einnig hægt að skoða dekkun þeirra netmiðla sem taka þátt í mælingunni eftir kyni, aldri, búsetu, menntun og tekjum en þeim upplýsingum var nýlega bætt við.

Ritstjórn Vísis þakkar lesendum sínum kærlega fyrir heimsóknirnar undanfarnar vikur.

Við tökum fagnandi við ábendingum, innsendum greinum og athugasemdum á ritstjórnarpóstinum okkar ([email protected]) og minnum á að nýjustu og helstu fréttir okkar eru birtar jafnóðum á Facebook-síðu Vísis þar sem samtal við lesendur er einnig mjög virkt allan sólarhringinn.


Tengdar fréttir

Vísir mælist stærstur

Vísir er í fyrsta sæti yfir vinsælustu vefi landsins. Í síðustu viku var íslenski notendafjöldinn einn sá mesti frá upphafi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×