Boutros Boutros-Ghali er látinn Atli Ísleifsson skrifar 16. febrúar 2016 15:32 Boutros-Ghali varð 93 ára gamall. Vísir/AFP
Egyptinn Boutros Boutros-Ghali, fyrrverandi aðalritari Sameinuðu þjóðanna, er látinn, 93 ára að aldri. Hann lést á sjúkrahúsi í egypsku höfuðborginni Kaíró. Rafael Ramirez, sendiherra Venesúela gagnvart Sameinuðu þjóðanna og núverandi forseti ráðsins, greindi frá þessu við upphafi fundar öryggisráðsins í dag þar sem til stóð að ræða mannúðarkrísuna í Jemen. Boutros-Ghali var að því loknu minnst með einnar mínútu þögn. Boutros-Ghali var sjötti aðalritari Sameinuðu þjóðanna og gegndi embættinu á árunum 1992 til 1996, og þurfti á þeim tíma meðal annars að fást við mál sem sneru að stríðinu á Balkanskaga og þjóðarmorðunum í Rwanda. Ganamaðurinn Kofi Annan tók við embættinu af Boutros-Ghali eftir að Bandaríkjastjórn lagðist gegn því að hann sæti annað kjörtímabil. Hann var menntaður lögfræðingur og starfaði lengi sem professor í þjóðarrétti og alþjóðasamskiptum við háskólann í Kaíró. Þá gegndi hann stöðu utanríkisráðherra Egyptalands á árunum 1978 til 1979.
Mest lesið Vinur læknisins líka með stöðu sakbornings Innlent Fjögur fyrirtæki hafa sótt um leyfi til að stunda hvalveiðar Innlent „Hvers konar hrokasvar er þetta?“ Innlent Fengu ekki inni hjá borginni og gistu í fangageymslum Innlent Jón Guðmundsson fasteignasali er látinn Innlent Vill ekki að talað sé um íslenska garðyrkju í þátíð Innlent Úkraínumönnum heimilt að beita langdrægum eldflaugum Erlent Alvarlegt bílslys við Þrastarlund og þrír fluttir með þyrlunni Innlent Börðust við eldinn klukkustundum saman í sex stiga frosti Innlent Ríkissáttasemjari segir viðræðum miða ágætlega Innlent Fleiri fréttir Leita einstaklinga sem hafa lifað óvenjulengi eftir greiningu Úkraínumönnum heimilt að beita langdrægum eldflaugum Felldu talsmann Hezbollah í miðborg Beirút Stefna lögreglu og leyniþjónustu vegna morðsins á Malcolm X Norsku skipagöngin á leið í útboðsferli Einar umfangsmestu loftárásir Rússa á orkuvinnviði Úkraínu Viss um að stríðinu muni ljúka fyrr en ella vegna kjörs Trump Tíu ungbörn létust og sextán særðust í eldsvoða á nýburadeild Rússar segja til hver annars líkt og á tímum Stalíns Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Næstu mánuðir skipta sköpum Neitar að segja ef sér þrátt fyrir hávær áköll Töluðu saman í fyrsta sinn í tvö ár Þrýst á Scholz að víkja fyrir vinsælasta stjórnmálamanni landsins Sprengdu upp leynilega kjarnorkuvopnarannsóknarstöð í Íran Fangelsaðar fyrir að gagnrýna forsetann og klæðaburð Musk sagður hafa átt fund með sendiherra Íran Segja loftslagsráðstefnurnar ekki lengur þjóna tilgangi sínum Leita óprúttins aðila sem kveikti í kjörkössum Trump setur Kennedy í heilbrigðismálin Ætla ekki að aðstoða hundruð manna í lokaðri námu The Onion kaupir InfoWars Vill sýna þinginu hver ræður Sprengdi sig upp fyrir utan hæstarétt Brasilíu Um 800 milljónir manna í heiminum með sykursýki Vilja svipta Le Pen frelsinu og kjörgengi í fimm ár Tilnefning Gaetz sem dómsmálaráðherra vekur furðu og reiði Repúblikanar með Hvíta húsið og allt þingið undir sinni stjórn „Valdaskiptin munu ganga svo smurt fyrir sig“ Melania Trump afþakkaði boð Jill Biden Stefnir í hreinsanir innan Pentagon Sjá meira