Lítið um tímaeyðslu Starri Freyr Jónsson skrifar 28. nóvember 2015 10:30 "Það var ekki legið of lengi yfir hlutunum heldur var flæðið svo rosalegt að það knúði fram þetta sköpunarverk," segir Teitur Magnússon tónlistarmaður. VÍSIR/STEFÁN
Fyrsta sólóplata Teits Magnússonar, gítarleikara og annars söngvara reggísveitarinnar góðkunnu Ojba Rasta, kom út í lok síðasta árs og fékk góða dóma. Í ár hefur Teitur fylgt plötunni eftir með fjölda tónleika og spilaði m.a. á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves í síðasta mánuði við afar góðar undirtektir. Ojba Rasta gaf út tvær plötur árin 2012 og 2013 sem nutu mikilla vinsælda. Aðspurður hvers vegna hann hefði gefið út sólóplötu á þessum tímapunkti segir hann það hafa verið hálfgerða tilviljun. „Eða kannski gripu örlögin í taumana? Ég hitti Mike upptökustjóra í Leifsstöð og varð samferða honum í bæinn. Á svipuðum tíma var ég að semja þessi lög og texta með frænda mínum, Skarphéðni Bergþórusyni, og svo fór bara boltinn að rúlla sumarið 2014. Þannig æxlaðist þetta sólóverkefni sem inniheldur þó heilmikla samvinnu og stuðning úr öllum áttum.“Létt og grípandi Platan, sem ber nafnið 27, er að hans sögn öðruvísi tónlist en hann hefur áður gefið út. „Hún er í grunninn grípandi og léttleikandi poppmúsík, orkestreruð með fjölbreyttum hljóðfærum. Það var ekki legið of lengi yfir hlutunum heldur var flæðið svo rosalegt að það knúði fram þetta sköpunarverk. Textarnir voru samdir jafnóðum eða gripnir glóðvolgir, jafnvel samplaðir upp úr næstu bók.“ Notkun exótískra hljóðfæra gerðist óvænt eins og margt annað í plötuferlinu. „Þegar ég kom í stúdíóið sá ég öll þessi hljóðfæri og áður enn ég vissi af þá voru helstu samstarfsmenn mínir, Arnljótur úr Ojba Rasta og Mike upptökustjóri, farnir að gera tilraunir með þau og hljóðheimurinn varð að veruleika. Fyrst var t.d. öll platan einungis sköpuð með trommuheilum og slagverki síðan ákváðum við að prófa að taka upp trommur inn á lögin. Sú tilraun varð svo lokaniðurstaðan. Þannig var það með nær allar tilraunirnar. Þær voru allar notaðar. Það var lítið um tímaeyðslu.“ Eitt lag plötunnar, Nenni, inniheldur texta eftir eitt helsta skáld Íslendinga, Benedikt Gröndal, og er frá 19. öld. „Það var frændi minn, Skarphéðinn, sem er skáld, safnvörður og grúskari sem á heiðurinn af því. Hann fann vísuna í einhverju grúski og benti mér á hana sem tilvalinn lagatexta. Hann er mikill Gröndalsmaður. Hann var einnig mín hægri hönd við alla textagerð á plötunni en við sátum saman í stofunni minni og brugguðum þessa texta fyrir plötuna.“Tár á hvarmi Teitur kom fram á síðustu Airwaves-hátíð sem haldin var í nóvember en hafði árin þar á undan spilað þar með Ojba Rasta. „Upplifunin var magnþrungin og lauflétt í senn. Ég spilaði ásamt tíu félögum mínu lögin af plötunni í Iðnó. Þrátt fyrir að Tjörnin hafi verið frekar andlaus þá var salurinn það ekki. Ég fann fyrir sterkum meðbyr. Fólk frá ýmsum stöðum í heiminum söng með eftir bestu getu og glitta mátti í tár á hvarmi. Þeir gagnrýnendur sem mættu á svæðið létu fögur orð falla og er ég afar þakklátur fyrir það.“ Hann segist sjaldan hafa skemmt sér jafnvel á Airwaves eins og í ár. „Enda kynntist ég frábæru fólki og sá öfluga listamenn á milli þess sem ég tróð upp í ýmsum myndum og naut þess í botn. Það er líka gaman að sjá íslenskt tónlistarlíf vaxa og dafna til sjávar og sveita, innan lands sem utan. Það er jákvætt að sjá nýja kynslóð stíga fram af miklu öryggi. Nú er að halda saman á kyndlinum og sjá hvert hann leiðir okkur.“Nýtt efni framundan Um helgina var frumsýnt nýtt myndband frá Teiti frumsýnt en um er að ræða lagið Kamelgult. Leikstjórn er í höndum Sigurðar Möllers Sívertsen, trommuleikara Grísalappalísu, en myndbandið var skotið á 16 mm filmu og sýnir götulífið í Sarajevó, Bosníu-Herzegóvínu, þar sem Sigurður er í kvikmyndaskóla. Hægt er að horfa á myndbandið í spilaranum neðar í fréttinni. „Í desember kem ég fram víða en þar má helst nefna feita tónleika á Húrra þann 17. desember þar sem ég kem fram með hljómsveit.“ Ný lög spretta stöðugt fram að sögn Teits sem bætir þeim jafnóðum við tónleikadagskrána. „Ég stefni á upptökur á nýju efni á næsta ári auk þess sem Ojba Rasta er komin aftur í gang með nýtt efni eftir stutt orlof. Ojba Rasta heldur þrettándaball þann 6. janúar á Húrra og það verður mergjað fjör! Það styttist einnig í upptökur þar á bæ.“Í faðmi fjölskyldunnar Nýlega eignuðust Teitur og unnusta hans litla stelpu en hún verður 13 vikna á morgun. „Það er mikil blessun að eignast barn og jólin fram undan verða þau fyrstu hjá litlu fjölskyldunni saman. Jólin eru í sjálfu sér fjölskylduhátíð og dæmigerð hjá mér hvað það varðar. Ég held upp á vetrarsólstöðurnar, friðinn og hækkandi sól í faðmi fjölskyldu og vina. Hins vegar eru engin jól eins, og sérstaklega ekki núna þegar mér hefur fæðst dóttir; ljós lífs míns.“
Tónlist Mest lesið „Ég þori alveg að fullyrða að ég er skítsæmileg móðir“ Lífið „Það er enginn séns að reyna alltaf að útskýra sig“ Tónlist Endurgreiða alla miða ef tónleikahald tekst ekki í kvöld Lífið Hundruðum svekktra tónleikagesta vísað frá Hvalasafninu Lífið Greitt úr leyfisvandræðum og tónleikarnir fara fram í kvöld Lífið Frelsaði húsgögn Brynhildar Lífið Skautadiskó til styrktar góðu málefni Lífið samstarf Fréttatían: Mannlíf, ferðamenn og Trump Lífið Hafa bæði kvatt sín fyrrverandi og eru alsæl saman Lífið Tengdadóttir forsætisráðherra í innsta koppi Loftssystkina Lífið Fleiri fréttir „Það er enginn séns að reyna alltaf að útskýra sig“ HAM reið á vaðið í fiskabúri X-ins 977 Létu ævintýrið loksins rætast í fiskabúrinu á X-inu „Stórir hlutir að koma og fólk þarf að vera tilbúið“ Emilíana Torrini heillaði tónleikagesti upp úr skónum Laufey naut lífsins með Ariönu Grande Rétta harmonikkan er í harmonikkuverksmiðju í harmonikkuþorpi Iceland Airwaves ýtt úr vör á Grund Fagna tuttugu ára afmæli og troða upp á Grund Segja aðra kaupa gervispilanir til að hafa áhrif á veðmál Young Thug játar sök en losnar úr fangelsi „Enginn þekkir mig og ég þekki engan, sem mér finnst þægilegt“ Laufey fagnaði með Oliviu Rodrigo og Chappell Roan Tileinkar lagið Grindvíkingum „Það hefur aldrei verið neinn ótti“ „Hugleikið hver fær að stunda kynlíf og hver ekki“ „Þetta er saga af villigötum“ „Enginn að fara að hringja í mig að fyrra bragði“ Kemur frá Sýrlandi og syngur á íslensku Space Odyssey opnar á nýjum stað Dr. Gunni spyr hvort það sé ekki bara búið að vera gaman Afhjúpað á hvaða dögum böndin spila á Airwaves Sjá meira