Rússar verði settir í bann Guðsteinn Bjarnason skrifar 10. nóvember 2015 07:00 Kanadamaðurinn Richard Pound, formaður rannsóknarnefndar Alþjóðalyfjaeftirlitsins, kynnti niðurstöður skýrslunnar um Rússa á blaðamannafundi í Sviss í gær. Fréttablaðið/EPA
Alþjóðalyfjaeftirlitsstofnunin, WADA, segir nauðsynlegt að banna Rússum þátttöku í frjálsum íþróttum vegna þess hve mikið sé um notkun ólöglegra lyfja. Nefndin rannsakaði ásakanir og grun um víðtæka lyfjamisnotkun meðal rússneskra íþróttamanna, yfirhylmingu með henni og þvinganir íþróttamanna til að taka þátt í slíku. Nefndin segir að með þessu framferði hafi Rússar unnið skemmdarverk á Ólympíuleikunum í London árið 2012. Dick Pound, formaður rannsóknarnefndar WADA, segir engu líkara en Rússland haldi uppi ríkisstuddri lyfjamisnotkun íþróttamanna. Stjórnvöld hafi ítrekað látið lyfjamisnotkun afskiptalausa, og meira að segja virðist Alþjóðafrjálsíþróttasambandið flækt í málið, að sögn Pounds. Pound segir þó að núverandi forseti Alþjóðafrjálsíþróttasambandsins, Coe lávarður, njóti fulls stuðnings síns til starfsins. Honum sé treystandi til að taka á þessu. Coe sendi í gær frá sér yfirlýsingu þar sem hann sagði upplýsingarnar í skýrslunni frá WADA vekja miklar áhyggjur. Hann muni reyna að afla stuðnings frá stjórn sambandsins við refsiaðgerðir gegn Rússum, þar á meðal hugsanlega brottvísun.
Mest lesið Tók hnífinn með af því að honum fannst hann „töff“ Innlent Taldi vegið að æru sinni innan hundaræktarsamfélagsins Innlent Neitar að segja ef sér þrátt fyrir hávær áköll Erlent Vill að borgin útbúi skýrar leiðbeiningar svo fleiri geti farið sömu leið og Arion Innlent „Ég er ekkert búin að læra“ Innlent Hófu frumkvæðisathugun á aðkomu Jóns í ráðuneytinu Innlent Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Kolefnisgjald hækkað en um minna en til stóð Innlent Skorar á fólk að dvelja heilan dag á kaffistofu Samhjálpar Innlent Fleiri fréttir Neitar að segja ef sér þrátt fyrir hávær áköll Töluðu saman í fyrsta sinn í tvö ár Þrýst á Scholz að víkja fyrir vinsælasta stjórnmálamanni landsins Sprengdu upp leynilega kjarnorkuvopnarannsóknarstöð í Íran Fangelsaðar fyrir að gagnrýna forsetann og klæðaburð Musk sagður hafa átt fund með sendiherra Íran Segja loftslagsráðstefnurnar ekki lengur þjóna tilgangi sínum Leita óprúttins aðila sem kveikti í kjörkössum Trump setur Kennedy í heilbrigðismálin Ætla ekki að aðstoða hundruð manna í lokaðri námu The Onion kaupir InfoWars Vill sýna þinginu hver ræður Sprengdi sig upp fyrir utan hæstarétt Brasilíu Um 800 milljónir manna í heiminum með sykursýki Vilja svipta Le Pen frelsinu og kjörgengi í fimm ár Tilnefning Gaetz sem dómsmálaráðherra vekur furðu og reiði Repúblikanar með Hvíta húsið og allt þingið undir sinni stjórn „Valdaskiptin munu ganga svo smurt fyrir sig“ Melania Trump afþakkaði boð Jill Biden Stefnir í hreinsanir innan Pentagon Ætlar að hætta áður en Trump rekur hann Mikil fjölgun í aftökum Rússa á stríðsföngum Hvítrússnesk andófskona skýtur upp kollinum eftir langa þögn Vill verða bæjarstjóri í Þórshöfn eftir kosningasigur Welby segir af sér í tengslum við kynferðisbrotamál Musk settur í niðurskurðinn og sjónvarpsmaður verður varnarmálaráðherra Aldraður barnalæknir dæmdur í fangelsi fyrir að vanvirða herinn Tugir látnir eftir að bíl var ekið inn í þvögu fólks í Kína Áfrýjun tólf ára fangelsisdóms vegna sjö þúsund króna hafnað Fjölgar hratt í ríkisstjórn Trumps Sjá meira