Jól

Jóladagatal - 16. desember - Púsluspil

Grýla skrifar

Systkinin Hurðaskellir og Skjóða ætla að föndra eitthvað skemmtilegt á Vísi á hverjum einasta degi fram að jólum.

Skjóða er að vísu með tíu tröllaputta og Hurðaskellir er algjör jólasveinn en þau hafa ótrúlega gaman að því að föndra og láta því ekki ónákvæmni eða brussugang á sig fá. Um leið og þau föndra kenna þau öðrum að gera jólaskraut, piparkökuhús, jólakort og fleira sniðugt.

Þau vita fátt skemmtilegra en að púsla og í dag ætla þau að búa til sitt eigið púsluspil. Púsluspilið er hægt að gefa í jólagjöf, það er hægt að búa til jólakort úr því nú eða auðvitað bara eiga það sjálfur. 

Klippa: 16. desember - Jóla­daga­tal Hurða­skellis og Skjóðu 2014

Frekari leiðbeiningar má finna á heimasíðunni jolasveinar.is og Facebook-síðu jólasveinanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×