Atli Viðar: Hef ekki legið í Heimi Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. október 2014 07:45 Atli Viðar reynir að skora framhjá Ingvari Jónssyni í Garðabænum. vísir/daníel
Atli Viðar Björnsson er þriðji markahæsti leikmaður Pepsi-deildar karla og næstmarkahæsti leikmaður FH. Þessi öflugi Dalvíkingur hefur þó ekki fengið að vera í byrjunarliði FH í deildarleik síðan FH mætti ÍBV þann 10. ágúst. Hann hefur skorað átta mörk fyrir FH í Pepsi-deildinni í sumar og alls 106 mörk í 235 leikjum í deild og bikar fyrir Fimleikafélagið undanfarin þrettán ár. Atli Viðar er einn dyggasti þjónn FH í sögunni. Svo mikið er víst. En hann hefur ekki þrýst á þjálfarann Heimi Guðjónsson um sæti í byrjunarliðinu - hann vill frekar láta verkin tala sínu máli. „Ég reyni að leggja mig fram á æfingum og sýna fram á að ég eigi skilið að fá tækifærið,“ sagði Atli Viðar hógvær að venju. „Auðvitað vill maður spila alla leiki. Þannig er það hjá mér eins og öllum öðrum.“Atli Viðar fagnar marki í leik gegn ÍBV árið 2006.Vísir/E. Ól.Atli Viðar hefur tekið þátt í öllum sex Íslandsmeistaratímabilum FH og hann varð þar að auki bikarmeistari með liðinu árið 2010. Hann komst reyndar í bikarúrslitaleikinn árið 2007 en þá með liði Fjölnis - sem lánsmaður frá FH. Hann fékk ekki að taka þátt í umræddum úrslitaleik sem FH-ingar unnu í framlengingu, 2-1. „Við erum með reynt lið og margir okkar hafa unnið titla og fleiri en einn. Við þekkjum þetta vel,“ segir Atli Viðar og neitar því ekki að þetta gæti komið FH-ingum vel. „Ég tel því að spennustigið hjá okkur verði í lagi þegar kemur að leiknum. Við verðum klárir í hvað sem bíður okkar.“Hér fagnar Atli Viðar í leik með Fjölni árið 2007.Vísir/PjeturAtli Viðar vonast til að hann fái tækifæri á laugardaginn og allra helst að fagna marki og Íslandsmeistaratitli fyrir framan rúmlega sex þúsund áhorfendur. „Ég iða í skinninu fyrir því að taka þátt í leiknum. Ég neita því ekki að það yrði gaman að skora og fagna titlinum. Ef það væri ekki þannig þá ætti maður að hætta þessu.“ En eftir þrettán ára glæsilegan feril í Hafnarfirðinum - telur Atli Viðar að leikurinn á morgun verði hans síðasti í búningi FH? „Ég ætla ekkert að tjá mig um það. Það er leikurinn á laugardaginn sem skiptir öllu máli og framhaldið kemur svo í ljós.“
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Atli Viðar Björnsson eini nýliðinn í Slóvakíuhópnum Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari Íslands í knattspyrnu, hefur valið FH-inginn Atla Viðar Björnsson í hóp sinn fyrir vináttulandsleik á móti Slóvakíu á Laugardalsvelli miðvikudaginn 12. ágúst. Atli Viðar er eini nýliðinn í hópnum að þessu sinni. 4. ágúst 2009 12:53 Atli Viðar: Fæ vonandi eitthvað að taka þátt í úrslitaleiknum núna Atli Viðar Björnsson fékk ekki að spila síðast þegar FH-ingar komust í bikaúrslitaleikinn en var þá í láni hjá Fjölni sem mætti FH í bikarúrslitaleiknum en fékk ekki leyfi til að spila leikinn. 28. júlí 2010 22:37 Atli Viðar Björnsson úr leik hjá FH Íslandsmeistarar FH hafa orðið fyrir enn einu áfallinu eftir að í ljós kom að framherjinn Atli Viðar Björnsson er með slitin krossbönd í hné og verður frá keppni í hátt í eitt ár. Atli Viðar meiddist í leiknum við Grindvíkinga í gær, en þetta er í annað sinn á nokkrum árum sem hann slítur krossbönd í þessu sama hné. 29. júní 2006 18:24 Atli Viðar með mark á hálftíma fresti í síðustu sex leikjum FH-ingurinn Atli Viðar Björnsson er búinn að skora í sex leikjum í röð í Pepsi-deildinni. 26. maí 2014 06:00 Kærum okkur ekki um neina forgjöf "Það liggur ljóst fyrir í samningnum sem gerður var milli félaganna að lánsmenn FH mega ekki spila gegn félaginu sínu í bikarkeppninni og það er klárt, en það getur vel verið að við tökum aðra ákvörðun þegar nær dregur," sagði Pétur Stephensen, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar FH í samtali við Vísi í dag þegar hann var spurður hvort FH-ingarnir þrír sem leika sem lánsmenn hjá Fjölni fengju að spila úrslitaleikinn í Visa-bikarnum gegn FH. 4. september 2007 10:22 Atli Viðar heldur sæti sínu í landsliðinu Ólafur Jóhannesson hefur valið landsliðið sem mætir Noregi í undankeppni HM 2010 á laugardaginn og Georgíu í vináttulandsleik á miðvikudaginn í næstu viku. 1. september 2009 15:03 FH er bikarmeistari karla FH-ingar eru bikarmeistarar karla í knattspyrnu eftir 2-1 sigur á Fjölni í framlengdum leik. Matthías Guðmundsson var hetja FH-inga en hann skoraði bæði mörk liðsins í dag. 6. október 2007 13:30 Atli Viðar framlengir við FH Stuðningsmenn FH halda áfram að fá góð tíðindi en FH-ingar hafa sent frá sér fréttatilkynningar í bunkum í þessari viku. Nú er það orðið staðfest að Atli Viðar Björnsson hefur framlengt við félagið. 24. október 2012 15:47 Atli Viðar: Held með Fjölni Atli Viðar Björnsson, leikmaður FH sem var í láni hjá Fjölni í sumar, segist ætla að styðja Fjölnismenn í bikarúrslitaleik liðanna á morgun. 5. október 2007 16:10 Hetja Fjölnis fær ekki að spila gegn FH Komin er upp ansi sérstök staða nú þegar ljóst er að Fjölnir leikur við FH í úrslitaleik VISA-bikarsins. Þrír leikmenn Fjölnis sem leikið hafa stórt hlutverk með liðinu í sumar eru samningsbundnir FH en í láni hjá Fjölni og fái ekki að leika í úrslitaleiknum. 3. september 2007 22:40 Atli og Heimir leika ekki gegn FH Knattspyrnudeild FH hefur ákveðið að gerður samningur milli FH og Fjölnis skuli standa. Því munu þeir Atli Viðar Björnsson og Heimir Snær Guðmundsson ekki leika með Fjölni gegn FH í úrslitaleik VISA bikarkeppninnar. 11. september 2007 00:17 Mest lesið Sjáðu Tyson slá Jake Paul á vigtuninni Sport Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi Enski boltinn „Schumacher lét mér finnast ég vera gagnslaus og hæfileikalaus“ Formúla 1 Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Fótbolti Fyrsta stóra fótboltafélagið sem yfirgefur X-ið: „Hatursvél“ Fótbolti United gæti skorið niður framlög til fatlaðra stuðningsmanna Enski boltinn Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Körfubolti LeBron gefur vísbendingu hvenær hann hættir Körfubolti Veðjar öllum ágóðanum af bardaga sínum á sigur Tysons Sport Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Kristófer áfram í Kópavogi Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn „Velkomin í dal draumanna“ Fram og Reykjavíkurborg semja um frekari framkvæmdir í Úlfarsárdal Fer til Eyja og fetar í fótspor föður síns Hermann Hreiðars tekur við HK Farinn til Tene og er ekkert að stressa sig Hafnaði uppeldisfélaginu og verður áfram í Mosfellsbæ Sunderland meðal þeirra liða sem horfa til Benóný Breka Oliver kveður Breiðablik „Skil vel að KR-ingar séu með vatn í munninum yfir því sem koma skal“ Víkingar gætu komið íslensku liði í Evrópudeildina „Þetta er liðið hans Höskuldar“ „Geta ekki smíðað sigurlið 1, 2 og 3 með því að kaupa inn dýra leikmenn“ „Einn af þeim bestu og skemmtilegustu sem við höfum séð síðustu ár“ Var í fjórða flokki þegar hann stýrði inni á æfingu meistaraflokks Sagður hafa slitið samningi við KA og leiti út „Ekki fyrirkomulaginu að kenna hvernig þeim gekk og þetta er ódýr afsökun“ Ein af stofnendunum leggur skóna á hilluna Sjá meira
Atli Viðar Björnsson eini nýliðinn í Slóvakíuhópnum Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari Íslands í knattspyrnu, hefur valið FH-inginn Atla Viðar Björnsson í hóp sinn fyrir vináttulandsleik á móti Slóvakíu á Laugardalsvelli miðvikudaginn 12. ágúst. Atli Viðar er eini nýliðinn í hópnum að þessu sinni. 4. ágúst 2009 12:53
Atli Viðar: Fæ vonandi eitthvað að taka þátt í úrslitaleiknum núna Atli Viðar Björnsson fékk ekki að spila síðast þegar FH-ingar komust í bikaúrslitaleikinn en var þá í láni hjá Fjölni sem mætti FH í bikarúrslitaleiknum en fékk ekki leyfi til að spila leikinn. 28. júlí 2010 22:37
Atli Viðar Björnsson úr leik hjá FH Íslandsmeistarar FH hafa orðið fyrir enn einu áfallinu eftir að í ljós kom að framherjinn Atli Viðar Björnsson er með slitin krossbönd í hné og verður frá keppni í hátt í eitt ár. Atli Viðar meiddist í leiknum við Grindvíkinga í gær, en þetta er í annað sinn á nokkrum árum sem hann slítur krossbönd í þessu sama hné. 29. júní 2006 18:24
Atli Viðar með mark á hálftíma fresti í síðustu sex leikjum FH-ingurinn Atli Viðar Björnsson er búinn að skora í sex leikjum í röð í Pepsi-deildinni. 26. maí 2014 06:00
Kærum okkur ekki um neina forgjöf "Það liggur ljóst fyrir í samningnum sem gerður var milli félaganna að lánsmenn FH mega ekki spila gegn félaginu sínu í bikarkeppninni og það er klárt, en það getur vel verið að við tökum aðra ákvörðun þegar nær dregur," sagði Pétur Stephensen, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar FH í samtali við Vísi í dag þegar hann var spurður hvort FH-ingarnir þrír sem leika sem lánsmenn hjá Fjölni fengju að spila úrslitaleikinn í Visa-bikarnum gegn FH. 4. september 2007 10:22
Atli Viðar heldur sæti sínu í landsliðinu Ólafur Jóhannesson hefur valið landsliðið sem mætir Noregi í undankeppni HM 2010 á laugardaginn og Georgíu í vináttulandsleik á miðvikudaginn í næstu viku. 1. september 2009 15:03
FH er bikarmeistari karla FH-ingar eru bikarmeistarar karla í knattspyrnu eftir 2-1 sigur á Fjölni í framlengdum leik. Matthías Guðmundsson var hetja FH-inga en hann skoraði bæði mörk liðsins í dag. 6. október 2007 13:30
Atli Viðar framlengir við FH Stuðningsmenn FH halda áfram að fá góð tíðindi en FH-ingar hafa sent frá sér fréttatilkynningar í bunkum í þessari viku. Nú er það orðið staðfest að Atli Viðar Björnsson hefur framlengt við félagið. 24. október 2012 15:47
Atli Viðar: Held með Fjölni Atli Viðar Björnsson, leikmaður FH sem var í láni hjá Fjölni í sumar, segist ætla að styðja Fjölnismenn í bikarúrslitaleik liðanna á morgun. 5. október 2007 16:10
Hetja Fjölnis fær ekki að spila gegn FH Komin er upp ansi sérstök staða nú þegar ljóst er að Fjölnir leikur við FH í úrslitaleik VISA-bikarsins. Þrír leikmenn Fjölnis sem leikið hafa stórt hlutverk með liðinu í sumar eru samningsbundnir FH en í láni hjá Fjölni og fái ekki að leika í úrslitaleiknum. 3. september 2007 22:40
Atli og Heimir leika ekki gegn FH Knattspyrnudeild FH hefur ákveðið að gerður samningur milli FH og Fjölnis skuli standa. Því munu þeir Atli Viðar Björnsson og Heimir Snær Guðmundsson ekki leika með Fjölni gegn FH í úrslitaleik VISA bikarkeppninnar. 11. september 2007 00:17