Tónlist

Íslensk tónlist vestanhafs

Tómas Young hjá Útón veitir nánari upplýsingar um umsóknirnar.
fréttablaðið/vilhelm
Tómas Young hjá Útón veitir nánari upplýsingar um umsóknirnar. fréttablaðið/vilhelm
Umsóknarfrestur Útón vegna safnplötunnar Made in Iceland, þar sem kynnt verður íslensk tónlist á erlendri grundu, rennur út í dag.

Síðustu fimm ár hafa Útón og Iceland Naturally staðið fyrir þessu verkefni. Markmiðið er að kynna nýja frumsamda tónlist frá Íslandi í Bandaríkjunum og vekja athygli háskólaútvarpsstöðva og þeirra sem kaupa tónlist fyrir myndefni á íslenskri tónlist.

Verkefnið felur í sér gerð safnplötu sem er dreift til yfir sex hundruð útvarpsstöðva og bloggara. Nánari upplýsingar fást hjá Tómasi Young á netfanginu [email protected].






Fleiri fréttir

Sjá meira


×