Sendi þýðinguna heim frá Jay Leno [email protected] skrifar 19. desember 2012 06:00 kominn heim Steingrímur Karl Teague er kominn heim eftir óvænta tónleikaferð með Of Monsters and Men.fréttablaðið/gva „
Þetta er eins og að vera með sæti í bestu röð að fylgjast með merkisviðburði," segir hljómborðsleikarinn Steingrímur Karl Teague úr hljómsveitinni Moses Hightower. Hann var fenginn til að spila með Of Monsters and Men á tónleikaferð sveitarinnar um Bandaríkin þegar hljómborðsleikarinn Árni Guðjónsson hætti óvænt og ákvað að snúa sér að öðrum verkefnum. „Brynjar [Leifsson] gítarleikari hringdi í mig þegar ég var á leið heim af Moses-æfingu. Þetta var tiltölulega stuttur fyrirvari. Það vill til að Moses er rispuband þannig að þetta passaði einhvern veginn vel," segir Steingrímur Karl, sem spilaði á um tuttugu tónleikum með Of Monsters and Men á um einum mánuði. Þeir síðustu voru í kvöldþætti Jay Leno í Los Angeles og eftir það flaug hann heim til Íslands til að spila í Háskólabíói síðastliðið föstudagskvöld með Moses Hightower og Ásgeiri Trausta. Hann spilar svo aftur með Moses á tónleikunum Hátt í höllinni í Laugardalshöll í kvöld. Aðspurður segir hann það hafa verið ljómandi gaman að spila hjá Jay Leno. „Hann var voða sólbrúnn og sætur og hress í galladressinu sínu," segir Steingrímur hlæjandi en bætir við að hann hafi haft lítinn tíma til að spá í hvar hann var staddur. Hann starfar sem þýðandi og til að mynda sendi hann eina þýðingu heim til Íslands baksviðs hjá Leno. „Það voru eiginlega allir tónleikarnir skemmtilegir," segir hann um tónleikaferðina. „Það myndast sérstök orka og stemning hjá hljómsveitinni og það er gaman að upplifa það." Eftir áramót heldur Steingrímur áfram að spila með Of Monsters and Men þegar farið verður í tónleikaferð um Asíu. Hljómsveitin er enn á tónleikaferð vestanhafs og hleypur trompetleikarinn Ragnhildur Gunnarsdóttir í skarðið fyrir hann á hljómborðinu þangað til. Kemur til greina að ganga endanlega til liðs við Of Monsters and Men? „Þau eru með sína veröld. Það er gaman að hjálpa til en þetta er algjörlega þeirra stemning. Það er svo mikil dýnamík þeirra á milli að ég myndi ekki treysta mér til þess. En það er voða gaman að hjálpa til og fá að fylgjast með á kantinum."
Lífið Tónlist Mest lesið Tengdadóttir forsætisráðherra í innsta koppi Loftssystkina Lífið Tengdó hringdi og vildi vita hvort Sunnu Dís hefði í alvöru liðið svona Lífið Fáir sáu íslenskar bíómyndir sem fengu 350 milljónir króna í styrk Lífið Segir fjölskylduna flutta Lífið „Getur líka fengið Óskarsverðlaun fyrir besta leik í aukahlutverki“ Lífið „Nýja heimsskipanin:“ Leynileg áætlun um heimsyfirráð í undirbúningi? Lífið Skellti sér á djammið Lífið „Er ekki að fara fram á það lifa lífinu í bómull“ Lífið Hafa bæði kvatt sín fyrrverandi og eru alsæl saman Lífið Bannað að hlæja: Stressið allsráðandi í upphafi kvöldsins Lífið Fleiri fréttir HAM reið á vaðið í fiskabúri X-ins 977 Létu ævintýrið loksins rætast í fiskabúrinu á X-inu „Stórir hlutir að koma og fólk þarf að vera tilbúið“ Emilíana Torrini heillaði tónleikagesti upp úr skónum Laufey naut lífsins með Ariönu Grande Rétta harmonikkan er í harmonikkuverksmiðju í harmonikkuþorpi Iceland Airwaves ýtt úr vör á Grund Fagna tuttugu ára afmæli og troða upp á Grund Segja aðra kaupa gervispilanir til að hafa áhrif á veðmál Young Thug játar sök en losnar úr fangelsi „Enginn þekkir mig og ég þekki engan, sem mér finnst þægilegt“ Laufey fagnaði með Oliviu Rodrigo og Chappell Roan Tileinkar lagið Grindvíkingum „Það hefur aldrei verið neinn ótti“ „Hugleikið hver fær að stunda kynlíf og hver ekki“ „Þetta er saga af villigötum“ „Enginn að fara að hringja í mig að fyrra bragði“ Kemur frá Sýrlandi og syngur á íslensku Space Odyssey opnar á nýjum stað Dr. Gunni spyr hvort það sé ekki bara búið að vera gaman Afhjúpað á hvaða dögum böndin spila á Airwaves Sjá meira