Erlent

Repúblikanar þinga í skugga fellibyls

Mitt Romney og ann eiginkona hans Í dag er röðin komin að Romney að flytja ræðu, en Ann ávarpaði landsþing repúblikana á þriðjudag.nordicphotos/AFP
Mitt Romney og ann eiginkona hans Í dag er röðin komin að Romney að flytja ræðu, en Ann ávarpaði landsþing repúblikana á þriðjudag.nordicphotos/AFP
Meðan fellibylurinn Ísak herjaði á íbúa New Orleans fylgdust repúblikanar almennt í Bandaríkjunum spenntir með landsþingi flokksins í Tampa, þar sem allir helstu leiðtogar flokksins flytja ræður.

Mikið úrhelli fylgdi fellibylnum en hvassviðrið varð aldrei jafn mikið og íbúar á þessum slóðum kynntust fyrir sjö árum, þegar fellibylurinn Katrína reið þar yfir.

Hundruð þúsunda yfirgáfu engu að síður heimili sín í öryggisskyni, en fellibylurinn fór hægt yfir og hellti ógrynni vatns yfir íbúa í Louisiana-ríki.

Á landsþingi repúblikana var röðin í gær komin að ræðu Pauls Ryan, varaforsetaefnis flokksins, sem afar skiptar skoðanir eru um meðal Bandaríkjamanna. Íhaldssamir frjálshyggjumenn hafa fagnað honum ákaft, en umdeildar fjárlagahugmyndir hans hafa farið misjafnlega í kjósendur.

Samkvæmt nýrri skoðanakönnun frá Pew-rannsóknarmiðstöðinni og dagblaðinu The Washington Post er algengast að Bandaríkjamenn telji hann bæði íhaldssaman og gáfaðan, en jafnframt hálfgerðan loddara og þykjustumann.

Í ræðu sinni í gærkvöld þurfti Ryan að tryggja sér og Mitt Romney, forsetaefni flokksins, stuðning sem flestra óákveðinna kjósenda sem geta ráðið úrslitum í forsetakosningunum í nóvember.

Stuðningsmenn Baracks Obama forseta notuðu hins vegar daginn í gær til að birta myndband þar sem dregin er upp sú mynd af Ryan að hann sé stjórnmálamaður frá löngu liðnum tíma, sem vilji meðal annars rústa heilbrigðistryggingakerfi eldri borgara.

Í gær skaut svo upp kollinum Condoleezza Rice, fyrrverandi utanríkisráðherra úr stjórn George W. Bush, sem flutti ræðu á landsþinginu. Þetta er í fyrsta sinn sem hún blandar sér að ráði í bandarísk stjórnmál eftir að hún lét af ráðherraembætti.

Í dag flytur svo Romney, forsetaefnið sjálft, sína ræðu þar. Eiginkona hans, Ann Romney, ávarpaði þingið á miðvikudagskvöld þar sem hún talaði meðal annars um 43 ára hjónaband þeirra og þá margvíslegu erfiðleika sem verkalýðsfjölskyldur eiga við að stríða:

„Ef þið hlustið vandlega, þá heyrið þið að konurnar andvarpa aðeins hærra en karlarnir. Svona er það bara, er það ekki? Það eru mæðurnar sem alltaf þurfa að leggja aðeins meira á sig til að koma öllu í rétt horf," sagði hún.

Skoðanakannanir sýna að mjótt er á mununum. Kjósendur virðast treysta Romney betur í efnahagsmálum, en kunna almennt betur við Obama.

[email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×