Erlent

Taylor sakfelldur fyrir stríðsglæpi

Sakfelldur í Haag Íbúar í Síerra Leóne fylgdust með beinni útsendingu frá réttarhöldunum.nordicphotos/AFP
Sakfelldur í Haag Íbúar í Síerra Leóne fylgdust með beinni útsendingu frá réttarhöldunum.nordicphotos/AFP
Mikill fögnuður braust út meðal íbúa í Freetown í Síerra Leóne þegar Charles Taylor, fyrrverandi forseti Líberíu, var sakfelldur fyrir stríðsglæpi í gær.

Þúsundir manna, sem lifðu af blóðuga borgarastyrjöld í landinu, fylgdust með beinni útsendingu þegar Richard Lussick, aðaldómari alþjóðlega stríðsglæpadómstólsins fyrir Síerra Leóne, las upp dómsúrskurðinn.

Taylor var sakfelldur fyrir að hafa veitt uppreisnarsveitum í borgarastríðinu í Síerra Leóne stuðning og aðstoð við stríðsglæpi sína og í sumum tilvikum beinlínis tekið þátt í að skipuleggja glæpaverkin.

Uppreisnarmennirnir sýndu mikla grimmd, stunduðu morð, limlestingar og nauðganir, þvinguðu börn til að taka þátt í grimmdarverkunum og hnepptu fólk í þrældóm. Mikið af þessum glæpum fellur undir glæpi gegn mannkyni.

Fyrir stuðning sinn fékk Taylor ógrynnin öll af demöntum frá uppreisnarmönnunum í Síerra Leóne: Blóðdemanta, sem svo hafa verið nefndir vegna þess að langvarandi átök í Líberíu, Síerra Leóne og víðar í nágrannaríkjunum hafa ekki síst snúist um aðgang að þeim.

Þetta er í fyrsta sinn í sögunni sem þjóðhöfðingi er sakfelldur fyrir stríðsglæpi af alþjóðlegum dómstól.

„Sakfelling Taylors sendir kraftmikil skilaboð um að jafnvel fólk í æðstu embættum getur verið dregið til ábyrgðar vegna alvarlegra glæpa," segir Elise Koppler hjá mannréttindasamtökunum Human Rights Watch. „Þetta er sigur fyrir fórnarlömbin í Síerra Leóne og alla þá sem leita réttlætis þegar verstu misþyrmingar eru framdar."

„Ég er feginn því að sannleikurinn sé kominn í ljós," segir Jusu Jarka, sem missti báða handleggi í átökunum í Síerra Leóne árið 1999 og var einn þeirra sem fylgdist með útsendingunni í gær.

Áður en Taylor varð forseti Líberíu var hann alræmdur fyrir grimmdarverk sem uppreisnarsveitir hans frömdu í borgarastyrjöldinni þar í landi.

Alþjóðlegi stríðsglæpadómstóllinn fyrir Síerra Leóne var stofnaður í Síerra Leóne árið 2000. Að honum standa bæði Sameinuðu þjóðirnar og stjórnvöld í Síerra Leóne. Ákveðið var að réttarhöldin yfir Taylor færu fram í Hollandi af ótta við að óeirðir brytust út ef þau yrðu haldin annaðhvort í Síerra Leóne eða í Líberíu.

[email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×