Tónlist

Innblástur frá uppreisninni

santigold Bandaríska tónlistarkonan er að gefa út sína aðra plötu, Master of My Make-Believe. nordicphotos/getty
santigold Bandaríska tónlistarkonan er að gefa út sína aðra plötu, Master of My Make-Believe. nordicphotos/getty
Hin bandaríska Santigold er að gefa út sína aðra sólóplötu. Fjögur ár eru liðin síðan hún steig fyrst fram á sjónarsviðið.

Master of Make-Believe nefnist ný plata bandarísku tónlistarkonunnar Santigold. Sú fyrsta, Santogold, kom út fyrir fjórum árum og vakti athygli fyrir góðar melódíur og hressilega blöndu af ýmsum tónlistarstefnum, þar á meðal hipphoppi, nýbylgjurokki og reggíi. Margir þekktir tónlistarmenn urðu hrifnir og vildu ólmir starfa með henni, þar á meðal Jay-Z, David Byrne og hljómsveitin Beastie Boys.

Santigold heitir réttu nafni Santi White. Hún fæddist 1976 í Fíladelfíu í Bandaríkjunum. Hún var söngkonan pönksveitarinnar Stiffed sem gaf út tvær plötur. Í framhaldinu var henni boðinn plötusamningur og fyrsta plata hennar kom út á vegum Downtown Records í Bandaríkjunum og Atlantic Records í Bretlandi.

Fjögur smáskífulög voru gefin út og mesta lukku vakti L.E.S. Artistes. Tímaritið Rolling Stone valdi það annað besta smáskífulag ársins og setti plötuna í sjötta sæti yfir þær bestu árið 2008.

Upptökustjórarnir Switch og Diplo aðstoða Santigold á nýju plötunni, rétt eins og á þeirri fyrri. Karen O úr Yeah Yeah Yeahs syngur með henni í smáskífulaginu Go!, þar sem gítarleikari sveitarinnar, Nick Zinner, kemur einnig við sögu. Dave Sitek úr TV on the Radio aðstoðar hana einnig á plötunni. Sem fyrr annast hún sjálf lagasmíðarnar.

Að sögn Santigold fjalla textarnir um að taka við stjórnartaumunum í lífi sínu og fékk hún þar innblástur frá fólkinu sem hefur staðið uppi í hárinu í stjórnvöldum víða um heim og lagt líf sitt í hættu.

Santigold verður dugleg við spilamennsku í sumar, bæði í Evrópu og Bandaríkjunum, þar sem hún spilar á hátíðunum Lollapalooza og Bonaroo.

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×