Erlent

Barist hart um olíu og landamæri

Brunnin olíuvinnslustöð Súdanar skoða skemmdir í landamærabænum Hegling, þar sem helsta miðstöð olíuvinnslu landsins er.nordicphotos/AFP
Brunnin olíuvinnslustöð Súdanar skoða skemmdir í landamærabænum Hegling, þar sem helsta miðstöð olíuvinnslu landsins er.nordicphotos/AFP
„Nágrannar okkar í Khartoum hafa lýst yfir stríði gegn lýðveldinu Suður-Súdan," sagði Salva Kiir, forseti Suður-Súdans, í Kína í gær á fundi sínum með Hu Jintao, forseta Kína.

Formleg stríðsyfirlýsing hafði ekki verið gefin út, en Kiir sagði sprengjuárásir súdanska hersins undanfarna daga jafnast á við slíka yfirlýsingu.

Á mánudag gerðu Súdanar sprengjuárásir á markaðstorg og olíuvinnslusvæði í Suður-Súdan. Sprengjuárásir héldu síðan áfram í fyrrinótt.

Súdanar segja þessar loftárásir gerðar vegna þess að suður-súdanski herinn hafði farið yfir landamærin með skriðdreka og fjölmennt lið hermanna.

Íbúar í Suður-Súdan lýstu yfir stofnun sjálfstæðs ríkis á síðasta ári en eiga í deilum við nágranna sína í norðrinu um olíuauðlindir og landamæri. Eitt stærsta deilumálið snýst um afnot Suður-Súdana af olíuleiðslum í gegnum Súdan.

Í síðasta mánuði slitnaði upp úr samningaviðræðum eftir að átök hófust á landamærunum. Suður-Súdanar réðust þá inn í landamærabæinn Hegling, sem þeir gera tilkall til.

Suður-Súdanar hafa nú dregið allt herlið sitt burt frá Hegling, að eigin sögn vegna alþjóðlegs þrýstings. Súdanski herinn segist hins vegar hafa hrakið suður-súdanska herinn frá Hegling.

Omar al-Bashir, forseti Súdans, hefur sagt að árásum á Suður-Súdan verði haldið áfram þangað til allt suður-súdanskt herlið er farið frá Súdan.

Á föstudaginn var Bashir harðorður, kallaði Frelsisher Suður-Súdans „eitruð skorkvikindi" og sagði ekki koma til greina að semja. Hann muni aldrei leyfa Suður-Súdönum að flytja olíu í gegnum Súdan, „jafnvel ekki þótt þeir gefi okkur helminginn af afrakstrinum".

Kiir, forseti Suður-Súdans, sagðist hafa farið til Kína þrátt fyrir það hve ástandið er viðkvæmt vegna þess að hann vill styrkja tengslin við Kínverja. Kínverjar hafa hins vegar reynt að tryggja góð tengsl við bæði Súdan og Suður-Súdan og hvetja ráðamenn ríkjanna til að komast að samkomulagi.

[email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×