Tónlist

Sóley hlaut hæsta styrkinn

Sóley hlaut hæsta styrkinn hjá Kraumi í ár ásamt Sólstöfum, Lay Low og Of Monsters and Men.
Sóley hlaut hæsta styrkinn hjá Kraumi í ár ásamt Sólstöfum, Lay Low og Of Monsters and Men. Fréttablaðið/Anton
Sóley Stefánsdóttir hlaut hæsta styrkinn hjá Kraumi í ár. Aðrir sem fengu háan styrk voru Sólstafir, Lay Low, Of Monsters and Men og hátíðin Eistnaflug.

Kraumur tónlistarsjóður hefur úthlutað ellefu milljónum króna til fimmtán tónlistartengdra verkefna. Þar af fengu tónlistarmenn sem eru að spila erlendis 5,4 milljónir.

Tónlistarkonan Sóley Stefánsdóttir fékk hæsta styrkinn, eða 1,2 milljónir króna. Hún gaf út sína fyrstu sólóplötu í fyrra, We Sink, sem hlaut mjög góðar viðtökur gagnrýnenda.

Rokksveitin Sólstafir fékk eina milljón í styrk og á eftir henni komu Lay Low og Of Monsters and Men með 800 þúsund krónur fyrir sameiginlega tónleikaferð um Bandaríkin og Kanada sem er nýhafin.

Kammerkór Suðurlands hlaut 600 þúsund krónur og Dead Skeletons, hljómsveit Jóns Sæmundar og Henriks Björnssonar, fékk hálfa milljón, rétt eins og Stafnbúi, sem þeir Hilmar Örn Hilmarsson og Steindór Andersen standa á bak við.

Fjórar milljónir voru veittar til verkefna innanlands. Hæstu styrkina fengu tónlistarhátíðin Eistnaflug, Mr. Silla og Snorri Helga, eða 700 þúsund hver. Raftónlistarhátíðin Extreme Chill Festival og hljómsveitin Moses Hightower hlutu hálfa milljón hvor.

Kraumur hefur verið starfandi í fimm ár og í þetta sinn bárust sjóðnum 189 umsóknir um styrki. Megintilgangur Kraums er að styðja við bakið á íslensku tónlistarlífi og þá fyrst og fremst ungum tónlistarmönnum.

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×