Tónlist

Syngur um græðgina og spillinguna á Wall Street

Bandaríski tónlistarmaðurinn Bruce Springsteen gefur eftir helgi út sína sautjándu hljóðversplötu. Hún kallast Wrecking Ball og er hans fyrsta í þrjú ár, eða síðan Working on a Dream kom út.

Í þetta sinn eru efnahagsmálin honum hugleikin, sérstaklega græðgi og spilling hvítflibbanna á Wall Street og sá skaði sem hefur orðið í bandarísku samfélagi, þar á meðal af völdum þeirra. Í meðfylgjandi myndbandi má sjá Bruce flytja titillag plötunnar.

Springsteen, sem er 62 ára, hefur oft á sínum farsæla ferli sungið um fólk sem á erfitt með að ná endum saman en í þetta sinn ákvað að hann beina sjónum sínum frekar að þeim sem áttu þátt í því að búa til hið slæma efnahagsástand sem nú ríkir í Bandaríkjunum.

„Tónlistin mín hefur alltaf snúist um að meta fjarlægðina á milli bandarísks veruleika og bandaríska draumsins, hversu löng hún er á hverri stundu," sagði Springsteen. „Uppruna plötunnar má rekja til ársins 2008 þegar mér fannst enginn vilja taka á sig neina ábyrgð í þjóðfélaginu. Wrecking Ball er myndlíking fyrir eitthvað sem hefur átt sér stað, þar sem eitthvað er eyðilagt til að byggja upp eitthvað nýtt. Þá er ég að tala um eyðileggingu á bandarískum gildum og hugmyndum sem hefur orðið, undanfarin, í rauninni þrjátíu ár."

Auk hefðbundinnar rokktónlistar eru þjóðlaga- og gospellög á plötunni. Með því að kafa aftur í tónlistarsöguna vildi Springsteen sýna að eyðileggingin sem hann talar um er einhvers konar hringrás sem kemur upp aftur og aftur í Bandaríkjunum.

Hljómsveitin E Street Band er Springsteen sem fyrr til halds og trausts á plötunni. Auk þess fékk hann hjálp frá Tom Morello, gítarleikara Rage Against the Machine, og Matt Chamberlain, fyrrverandi trommara Pearl Jam.

Springsteen, sem hefur oft verið kallaður Stjórinn, heldur fyrirlestur á tónlistarhátíðinni South By Southwest í Texas um miðjan mars. Að honum loknum leggur hann af stað í tónleikaferð um Bandaríkin. Í maí hefst svo tónleikaferð um Evrópu sem lýkur í Helsinki 31. júlí. Hann spilar einnig á Hróarskeldu í júlí og verður það í fyrsta sinn í fjörutíu ára sögu hátíðarinnar sem goðsögnin kemur þar fram.

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×