Tíska og hönnun

Kjallarinn orðinn kósí

Sófinn er nýr og hann prýða púðar eftir Guðlaugu.
Sófinn er nýr og hann prýða púðar eftir Guðlaugu.

„Ég tók kjallarann hjá mér í gegn," segir Guðlaug Ágústa Halldórsdóttir, þegar Fréttablaðið forvitnast um nýjustu framkvæmdirnar á heimilinu.

Synir Guðlaugar voru áður með herbergi í kjallaranum. Þegar þeir fluttu sig annað tók Guðlaug til óspilltra málanna og breytti kjallaranum í litla íbúð.

Þegar synirnir fluttu sig annað tók Guðlaug til óspilltra málanna og breytti kjallaranum í litla íbúð. Myndir/Arnþór
„Ég byrjaði í september og framkvæmdum lauk fyrir jól. Hér niðri var hvorki bað né eldhús og ég setti upp hvort tveggja. Eitthvað af húsgögnum átti ég til en keypti líka notuð húsgögn í Góða hirðinum og víðar til að fá svolítið retró útlit."

Sófinn er nýr og hann prýða púðar eftir Guðlaugu. „Ég er alltaf að búa til púða og gardínur og er á leiðinni með að setja upp nýja heimasíðu fyrir Má mí mó. Svo hengdi ég upp gamlar útsaumsmyndir sem ég safna en ég hef alltaf gaman af hlutum sem mikil vinna hefur verið lögð í," segir Guðlaug og er ánægð með útkomuna.

"Kjallarinn er orðinn mjög kósí."

[email protected]

Guðlaug keypti notuð húsgögn í Góða hirðinum og víðar til að fá svolítið retró útlit.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×