Erlent

Skattamálið reynist Venstre harla erfitt

Helle Thorning-Schmidt og Stephen Kinnock Stephen, eiginmaður forsætisráðherra Danmerkur, er sonur Neils Kinnock, fyrrverandi leiðtoga breska Verkamannaflokksins.nordicphotos/AFP
Helle Thorning-Schmidt og Stephen Kinnock Stephen, eiginmaður forsætisráðherra Danmerkur, er sonur Neils Kinnock, fyrrverandi leiðtoga breska Verkamannaflokksins.nordicphotos/AFP
Grunur um óréttmæt afskipti stjórnar Lars Løkke Rasmussen, fyrrverandi forsætisráðherra Danmerkur, af skattamálum núverandi forsætisráðherra eru óðum að snúast upp í martröð fyrir flokk Rasmussens, hægriflokkinn Venstre sem nú er í stjórnarandstöðu.

Rannsóknarnefnd fær nú það verkefni að kalla bæði Rasmussen og Troels Lund Poulsen, sem var skattaráðherra í stjórn Rasmussens, í yfirheyrslur sem hugsanlega verður sjónvarpað beint.

Sérfræðingar telja líkur á að málið geti endað fyrir landsdómi, komi í ljós að skattaráðuneytið hafi misnotað völd sín til að klekkja á pólitískum andstæðingi.

Forsagan er sú að sumarið 2010 birtust í dönskum fjölmiðlum upplýsingar um persónuleg skattamál Helle Thorning-Schmidt, leiðtoga danska Jafnaðarmannaflokksins, sem nú er orðin forsætisráðherra landsins. Grunsemdir vöknuðu um að hún og eiginmaður hennar, Stephen Kinnock, hefðu svikið undan skatti.

Þau voru hreinsuð af þeim grun fáeinum vikum síðar, en undanfarið hefur athyglin beinst að því hver lak þessum persónuupplýsingum í fjölmiðla sumarið 2010. Vaxandi grunur beinist að Peter Arnfeldt, sem var fjölmiðlafulltrúi Poulsens, þáverandi skattamálaráðherra.

Alvarlegast væri ef Poulsen eða starfsmenn hans í ráðuneytinu yrðu uppvísir að því að hafa reynt að hafa bein eða óbein afskipti af skattamálum þeirra hjóna.

Sjálfur neitar Poulsen þessu og Rasmussen segist ekkert vita.

„Við erum öll mjög spennt að sjá hve stór skaðinn verður,“ hefur danska dagblaðið Politiken eftir ónefndum talsmanni Venstre.

Dönsku dagblöðin B.T. og Ekstra Bladet sitja einnig undir gagnrýni fyrir að hafa birt upplýsingarnar sem lekið var til þeirra.

[email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×