Tónlist

Bjó til plötu og börn

Ný nálgun Toggi segist ekki vera eins persónulegur í textagerð sinni á annarri plötunni. Hann bendir þeim sem kaupa plötuna ekki rafrænt á að hægt er að hafa samband við hann til að fá aðgang að tólf laga aukaplötu. Fréttablaðið/Anton
Ný nálgun Toggi segist ekki vera eins persónulegur í textagerð sinni á annarri plötunni. Hann bendir þeim sem kaupa plötuna ekki rafrænt á að hægt er að hafa samband við hann til að fá aðgang að tólf laga aukaplötu. Fréttablaðið/Anton
Barneignir hafa tafið plötugerð hjá popparanum Togga. Fimm ár eru liðin frá síðustu plötu og strákarnir í hljómsveitinni hans hafa eignast sex börn á þeim tíma. Platan Wonderful Secrets kom út í vikunni.

Fimm ár eru liðin frá því að Þorgrímur Haraldsson, Toggi, gaf út sína fyrstu plötu, Puppy, og nú á dögunum leit loks önnur plata listamannsins ljós. Sú heitir Wonderful Secrets og hefur að geyma alls 26 lög á tveimur plötum, annarri eingöngu rafrænni. Þeir sem kaupa geisladiskinn þurfa að hafa samband við Togga til að komast yfir rafrænu aukaplötuna.

Toggi hefur ekki setið aðgerðalaus í millitíðinni, en hann hefur samið lög fyrir þekkta íslenska flytjendur og hlaut meðal annars Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir ofursmellinn Þú komst við hjartað í mér sem bæði Páll Óskar og Hjaltalín fluttu.

Plata númer tvö var þó alltaf ofarlega í huga Togga, en mikil afköst á öðru sviði en í tónlistinni seinkuðu fæðingu hennar umtalsvert. „Við erum bara búnir að vera að eignast börn. Við erum fimm í hljómsveitinni og erum komnir með sex börn á þessum fimm árum,“ segir Toggi, sem sjálfur á tvö þessara barna.

„Svo er þetta líka raunveruleiki íslenskra tónlistarmanna. Við erum allir í fullri vinnu og erum smámunasamir og höfum ekkert rosalega mikinn tíma. Við vinnum á daginn, erum með fjölskyldunni á kvöldin og þá höfum við eiginlega bara nóttina í tónlistina.“

Fyrsta plata Togga hlaut góðar viðtökur á sínum tíma og mikla spilun í útvarpi. Aðspurður segir hann nýju plötuna að mörgu leyti ólíka þeirri fyrstu. „Við ákváðum mjög snemma að vera ekki að festa okkur í því að platan þyrfti að vera ein samstæð heild. Við gáfum bara skít í það allt en það var eitthvað sem hafði skipti mig rosalega miklu máli með fyrstu plötuna. Mig langaði bara að gera eitthvað öðruvísi. Við tókum eiginlega allan kassagítar út en á fyrri plötunni heldur kassagítarinn flestum lögunum uppi. Í þetta sinn leyfðum við hverju lagi að hafa sinn karakter.“

Toggi semur alla textana á plötunni og segist hafa nálgast textagerðina með öðrum hætti í þetta skiptið. „Platan er minna persónuleg, efnistökin í textunum eru ekki jafn persónuleg en samt eru þeir miklu meira ég. Síðasta plata var svolítið eins og ég í sparifötum, ljúfur og góður og svona eins og ég væri nýbyrjaður að deita stelpu. Á þessari plötu er ég kominn á það stig í sambandinu að ég er farinn úr sparifötunum og kannski farinn að leyfa mér að prumpa og svona.“

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×