Tíska og hönnun

Meðal fremstu hönnuða

Hönnun Sigrúnar Höllu Unnarsdóttur sem útskrifaðist með master í fatahönnun frá Kolding school of design í sumar, hefur verið valin til framleiðslu og sölu í Evrópu af nýju dönsku fyrirtæki.fréttablaðið/vilhelm
Hönnun Sigrúnar Höllu Unnarsdóttur sem útskrifaðist með master í fatahönnun frá Kolding school of design í sumar, hefur verið valin til framleiðslu og sölu í Evrópu af nýju dönsku fyrirtæki.fréttablaðið/vilhelm
„Ég er búin að vera inni í eina og hálfa viku, en þau höfðu samband við mig í haust," segir Sigrún Halla Unnarsdóttir fatahönnuður, en danska heimasíðan, www.muuse.com hefur valið útskriftarlínu Sigrúnar frá Kolding school of design til framleiðslu og dreifingu í Evrópu.

Muuse.com fór í loftið í sumar með það að markmiði að bjóða 25 efnilegustu útskriftarnemum frá bestu hönnunarskólum heims hverju sinni að selja vörur beint til neytenda. Flíkurnar eru framleiddar á saumastofu Muuse í Kaupmannahöfn eftir pöntunum, svo fjárhagsleg áhætta hönnuðanna er engin.

„Þetta er frábært tækifæri, því eftir útskrift hefur maður oft lítið bakland til að koma línunni í framleiðslu sjálfur. Þau hafa einnig boðið mér að hanna aðra línu inn á síðuna og eru dugleg að koma á samstarfi milli hönnuðanna og annarra greina, til dæmis kvikmyndagerðarfólks og fleira í þeim dúr," segir Sigrún.

Útskriftarlína hennar vakti þó ekki einungis athygli Muuse en um hana hefur verið fjallað á heimasíðu Dazed and confused, dönsku tískusíðunni Costume.dk og víðar. Einnig fékk Sigrún boð um þátttöku í hönnunarkeppninni Designers nest í Danmörku í sumar og var ein af fimm þátttakendum í samkeppni á vegum stórfyrirtækis í tískuheiminum.

„Ég má ekkert segja um það verkefni og var látin skrifa undir samning um að gefa ekki upp hvaða fyrirtæki þetta er. Keppnininni verður sjónvarpað í Evrópu í janúar," segir hún leyndardómsfull.

Sigrún Halla er nú flutt heim og hefur komið sér upp vinnustofu í Hafnarastræti. Þar er hún með nokkur járn í eldinum, meðal annars hönnunarverkefnið Norðaustan 10 þar sem hópur hönnuða vinnur með austfirskt hráefni. Hún segir heimalandið hafa kallað þó hlutirnir hafi verið farnir að rúlla vel í Danmörku. „Mig langaði til að freista gæfunnar hér," segir hún. „Ég er svo heimakær."

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×