Tíska og hönnun

E-Label snýr aftur á markað

Heba Hallgrímsdóttir seldi fatamerkið E Label til Jóns Ólafssonar en fylgdi með í kaupunum. Þau Ásgrímur Már Friðriksson fatahönnuður ætla að stuðla að endurkomu E Label-merkisins.
Heba Hallgrímsdóttir seldi fatamerkið E Label til Jóns Ólafssonar en fylgdi með í kaupunum. Þau Ásgrímur Már Friðriksson fatahönnuður ætla að stuðla að endurkomu E Label-merkisins. Fréttablaðið/Vilhelm
Fyrirtækið hefur legið í dvala í smá tíma og við ákváðum þess vegna að selja það og gefa því nýtt líf,“ segir Heba Hallgrímsdóttir, fyrrverandi eigandi fatamerkisins E Label sem flestir tískusinnaðir Íslendingar ættu að kannast við.

Það var athafnamaðurinn Jón Ólafsson sem keypti fyrirtækið af Hebu og Ástu Kristjánsdóttur en Heba heldur áfram að starfa í fyrirtækinu. „Það má eiginlega segja að ég hafi fylgt með í kaupunum og er því starfsmaður E Label núna. Við ætlum að gera þetta skemmtilegt á ný og taka merkið aftur á þann stað sem það var þegar það byrjaði,“ segir Heba en E Label varð meðal annars frægt fyrir leggings sem poppdívan Beyoncé heillaðist af og hannaði svo svipaðar fyrir sitt eigið merki.

Það er fatahönnuðurinn Ásgrímur Már Friðriksson sem á heiðurinn af hönnun leggingsbuxnanna en hann hannaði fyrir fatamerkið fyrir nokkrum misserum. Ási, eins og hann er kallaður, gengur nú aftur til liðs við E Label. „Það er frábært að fá Ása aftur. Hann er mjög klár fatahönnuður og á heiðurinn af mörgum af flottustu E Label-fötunum,“ segir Heba. Hennar hlutverk innan fyrirtækisins er að stjórna hönnunarferlinu ásamt hönnuðinum, sjá um framleiðsluna og samskiptin við útlönd. „Um leið og fyrsta fatalínan hans Ása er tilbúin, vonandi í byrjun næsta árs, förum við með merkið á erlendan markað. Það má eiginlega kalla þetta endurkomu E Label.“

Heba ber Jóni Ólafssyni vel söguna en hann hefur verið að teygja anga sína inn í tískubransann undanfarið sem eigandi fyrirsætuskrifstofunnar Elite, íslenska tískuviðburðarins Reykjavík Fashion Festival og fatamerkisins Eva Lín.

„Jón sér möguleika í hlutunum en hann kemur ekkert að daglegri stjórnun fyrirtækisins og gefur okkur frjálsar hendur,“ segir Heba. Nýjar vörur frá E Label eru væntanlegar í verslunina 3 Smárar og á netsíðuna shopelabel.com á næstu vikum.

[email protected]

RFF





Fleiri fréttir

Sjá meira


×